Nýliðið ár markaði mikilvæg tímamót í sögu KPMG á Íslandi þegar við fögnuðum 50 ára afmæli félagsins. Allan þennan tíma hefur KPMG verið mikilvægur samstarfsaðili atvinnulífsins og samfélagsins í heild með það að markmiði að skapa traust. Það er hlutverk sem við tökum alvarlega og lítum á sem meginskyldu okkar.
Rekstur KPMG á Íslandi gekk afar vel á rekstrarárinu 2024/25 og náðist góður árangur á öllum meginþjónustusviðum okkar, endurskoðun, ráðgjöf og skatta- og lögfræðiþjónustu. Það var vöxtur á öllum okkar sviðum á árinu og við ætlum áfram að horfa til vaxtar með arðsemi að leiðarljósi. Umtalsverðar breytingar urðu á okkar rekstri í ársbyrjun 2025 þegar KPMG Bókað var selt til norska fjártæknifélagsins ECIT. Sú ákvörðun var í samræmi við stefnu okkar um að skerpa þjónustuframboð KPMG á Íslandi og færa til samræmis við áherslur KPMG á alþjóðavísu.
Á árinu var unnið að nýrri stefnu KPMG á Íslandi til næstu ára og var hún kynnt á haustmánuðum. Meginstefna okkar er að skapa skýrt virði fyrir okkar viðskiptavini og skara framúr í hagnýtingu á tækni í þjónustu okkar. Undirstaðan undir stefnuna er okkar frábæra starfsfólk og hvernig við nýtum tækni í sambland við okkar sérþekkingu. Við höfum undanfarin ár haft að leiðarljósi kjörorðin “Betri saman” sem þýðir að við vinnum saman þvert á öll okkar svið með það að markmiði að skapa viðskiptavinum okkar aukið virði. Það hefur skilað miklum árangri og við munum áfram byggja á því.
Jafnframt höfum við unnið ötullega á nýliðnu ári að því að auka samstarf KPMG á Íslandi við kollega okkar á Norðurlöndunum og verða stigin frekari skref í því áfram. Með því að efla norrænt samstarf innan KPMG verðum við betur í stakk búin til að vaxa og fjárfesta saman í tækni og nýjum lausnum, bjóða viðskiptavinum okkar upp á betri þjónustu ásamt því að gefa starfsfólki okkar frekari tækifæri til starfsþróunar í alþjóðlegu umhverfi.
Starfsfólkið er okkar mikilvægasta auðlind og starfsánægjukannanir sýna að fólkið okkar er stolt og ánægt af því að starfa hjá KPMG. Við munum áfram leggja mikla áherslu á að búa starfsfólki okkar framúrskarandi starfsumhverfi með það að markmiði að KPMG sé eftirsóttasti vinnustaðurinn á okkar markaði. Við erum þakklát starfsfólki okkar fyrir þann trúnað sem það sýnir okkur og velgengni KPMG og traust sem við njótum í atvinnulífinu byggir á þeim grunni.
Við horfum með bjartsýni til framtíðar og erum reiðubúin til að takast á hendur þær áskoranir sem framundan eru ásamt því að grípa tækifæri sem gefast.
Um skýrsluna
KPMG á Íslandi gefur út sína fimmtu ársskýrslu en skýrslan tekur til reksturs, starfsemi og sjálfbærni hjá KPMG ehf. fyrir rekstrarárið 1. október 2024 til 30. september 2025.
Í skýrslunni er farið yfir rekstur félagsins á tímabilinu og skuldbindingar þess á sviðum umhverfismála, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Skýrslan tekur til allra 14 starfsstöðva KPMG á Íslandi.
Upplýsingar í skýrslunni eru birtar í samræmi við ítarlegt sniðmát (e. Comprehensive module) valkvæða sjálfbærnistaðalsins fyrir lítil og meðalstór óskráð félög (e. Voluntary Sustainability Reporting Standard for non-listed SMEs (VSME)). Umhverfishluti skýrslunnar er byggður á aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol.
Rekstur ársins
Yfirlit yfir rekstur fjárhagsársins 2024-2025 hjá KPMG ehf.
Rekstrarárið 2025 var farsælt fyrir KPMG ehf. Tekjur félagsins námu 7.594 milljónum króna og jukust um rúmlega 15% frá fyrra ári. Hagnaður ársins var 812 milljónir króna, sem endurspeglar stöðugan vöxt og sterka afkomu. Eignir félagsins námu 2.824 milljónum króna í lok september og eigið fé stóð í 984 milljónum króna, með eiginfjárhlutfall upp á 35%.
Á árinu störfuðu 217 starfsmenn hjá félaginu, þar af 106 konur og 111 karlar, og voru ársverk samtals 206.
Í upphafi árs 2025 gengu formlega í gegn kaup norska fjármála- og tæknifyrirtækisins ECIT á meirihluta í KPMG Bókað ehf., dótturfélagi KPMG sem sinnir bókhalds- og launaþjónustu. Samhliða kaupunum var nafni félagsins breytt í ECIT Bókað ehf. Salan var liður í stefnu KPMG ehf. um að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni í endurskoðun, reikningsskilum, skattaráðgjöf og ráðgjafarþjónustu og tryggja viðskiptavinum aðgang að sérhæfðri bókhalds –og launaþjónustu í gegnum öflugan samstarfsaðila.
Lykiltölur úr rekstri
Framkvæmdastjórn KPMG á Íslandi 2024-2025
Ágúst Karl Guðmundsson, framkvæmdastjóri KPMG Law
Erik Christianson Chaillot, mannauðsstjóri
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Hrafnhildur Helgadóttir, forstöðumaður áhættustýringar og óhæðis
Magnús Jónsson, sviðsstjóri endurskoðunarsviðs
Sigrún Kristjánsdóttir, sviðsstjóri þróunar og reksturs
Svanbjörn Thoroddsen, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs
Efri röð f.v. Svanbjörn Thoroddsen, Hlynur Sigurðsson, Erik Christianson Chaillot og Sigrún Kristjánsdóttir. Neðri röð f.v. Magnús Jónsson, Hrafnhildur Helgadóttir og Ágúst Karl Guðmundsson.
Stjórn KPMG
Magnús Gunnar Erlendsson, stjórnarformaður
Hjördís Ýr Ólafsdóttir
Jónas Rafn Tómasson
Sigríður Soffía Sigurðardóttir
Sigurjón Örn Arnarson
F.v. Jónas Rafn Tómasson, Hjördís Ýr Ólafsdóttir Sigríður Soffía Sigurðardóttir, Sigurjón Örn Arnarson og Magnús Gunnar Erlendsson, formaður stjórnar.
Stefna og markmið KPMG
Kjarni stefnu KPMG á Íslandi sem mótuð og innleidd var árið 2022 er að vaxa á traustum grunni með því að vera augljóst val viðskiptavina, stuðla að ánægju starfsfólks og hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Undirstöður stefnunnar eru að nýta krafta og þekkingu starfsfólks undir merkjunum „Betri saman“, stuðla að aukinni skilvirkni í starfsemi félagsins og hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Stefnan byggir á megintilgangi KPMG á alþjóðavettvangi sem er að efla traust á fjármálamörkuðum og vera drifkraftur jákvæðra breytinga í samfélaginu. Markmið sem sett voru samhliða stefnunni náðu fram til ársins 2025 og hafa þau í meginatriðum náðst. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt á öllum sviðum og á sama tíma styrkt stöðu sína á markaði sem augljóst val viðskiptavina.
Síðastliðið starfsár var það fyrsta eftir að félagið seldi bókhalds- og launaþjónustu til norska félagsins ECIT. Einnig hefur félagið aukið samstarf sitt við aðildarfélög KPMG á norðurlöndum og er stefnt á enn frekari skref í þá átt á næstu árum. Þá hefur tækni, sérstaklega hröð þróun í gervigreind, mjög mikil áhrif á starfsemi endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja um allan heim. Félagið hóf vinnu við mótun nýrrar stefnu á síðasta starfsári og komu fjölmargir úr starfsmannahópi félagsins að þeirri vinnu. Ný stefna félagsins var kynnt á starfsdegi í október 2025 og verður henni gerð betri skil í næstu ársskýrslu. En grunnþættir í þeirri stefnu eru að skapa skýrt virði fyrir viðskiptavini með samspili tækni og þekkingar, leggja grunn að arðbærum vexti og vera leiðandi á markaði. Hefur félagið sett sér sex stefnuáherslur til að styðja við stefnuna, en þær eru eftirfarandi:
- Þjónusta sem skapar virði
- Eftirsóknarverður vinnustaður
- Tæknidrifin
- Sterkari með norrænu samstarfi
- Hreyfum okkur hratt
- Betri saman
Nýrri stefnu félagsins verða gerð betri skil í næstu ársskýrslu.
Gildi KPMG
KPMG vinnur eftir fimm gildum sem eru leiðarljós í allri daglegri vinnu. Þessi gildi fela í sér að starfa eftir heilindum, nýta fjölbreytta styrkleika til að skapa samheldni, sýna hugrekki með því að hugsa stórt og opinskátt, leggja stöðugt áherslu á framúrskarandi árangur og tryggja að öll verkefni félagsins séu unnin til hins betra.
Fimmtíu ára afmæli KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi fagnaði 50 ára afmæli félagsins á síðasta starfsári með fjölbreyttum viðburðum sem endurspegluðu sögu og starfsemi fyrirtækisins. Í maí var fyrrverandi starfsfólki boðið til afmælisfagnaðar þar sem margir mættu og rifjuðu upp góðar minningar.
Þá var fyrsti Framtíðardagur KPMG haldinn þar sem viðskiptavinum og öðrum gestum var boðið upp á áhugaverð erindi um framtíðina og þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtæki og opinberir aðilar standa frammi fyrir. Að erindum loknum var boðið upp á léttar veitingar þar sem gestir og starfsfólk fögnuðu afmæli félagsins.
Í október var haldinn starfsdagur þar sem áhersla var lögð á samveru og innri styrkingu starfsfólks. Á þeim degi var einnig kynnt ný stefna félagsins til ársins 2028. Dagurinn endaði á glæsilegri afmælis árshátíð þar sem starfsfólk fagnaði saman þessum merku tímamótum. Afmælishátíðirnar voru vel sóttar og sköpuðu tækifæri til að styrkja tengsl innan fyrirtækisins, við fyrrverandi starfsmenn og viðskiptavini, auk þess sem framtíð og þróun í rekstri var sett í samhengi við breyttar aðstæður og ný tækifæri.