Mikilvægisgreining okkar frá árinu 2024 gefur til kynna að sá umhverfisþáttur sem við getum haft mest áhrif á er mildun loftslagsáhrifa, einkum samdráttur í losun. Með það í huga vinnum við að markmiði KPMG á heimsvísu um að vera kolefnishlutlaus (e. Net zero) árið 2030.

Áhrif okkar er snúa að umhverfis- og loftlagsmálum birtast einnig óbeint í gegnum vinnu okkar með viðskiptavinum. Við leggjum áherslu á að fræða og aðstoða viðskiptavini okkar um sjálfbærni, bæði þegar kemur að stefnumótun og innleiðingu, ásamt því að veita ráðgjöf um uppfærðar kröfur og reglugerðir er varða sjálfbærni.

Helstu losunarþættir og breytingar milli ára

Við notumst við GreenSenze lausnina okkar þegar kemur að losunarútreikningum fyrir síðastliðið rekstrarár.  Með þeim hætti er okkur gert kleift að auka talsvert við umfangið af þeim þáttum sem teknir eru inn í útreikningana og  gefur það okkur bæði aukna innsýn og gagnsæi á okkar helstu losunarþætti.

Heildarlosunin okkar á árinu var samtals 500,7t CO2í

97,6% losunar var frá umfangi 3

KPMG birtir upplýsingar um losun í umfangi 3, sem nær til óbeinnar losunar í virðiskeðju félagsins. Mest losun í þessum flokki stafar frá aðkeyptri vöru og þjónustu, sem nemur 59% af heildarlosun í umfangi 3. Viðskiptaferðir mynda 21,2% og ferðir starfsfólks til og frá vinnu 18,4%.

Samdráttur í losun milli ára má helst rekja til minni losunar vegna innkaupa á vörum fyrir mötuneyti, ásamt fækkun stöðugilda. Fækkunin hefur mest áhrif á losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu, auk losunar sem tengist aðkeyptum vörum á árinu.

Á síðustu rekstrarárum höfum við hvatt starfsfólk til að nýta vistvænar samgöngur og fækka óþarfa ferðum. Samdráttur í losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu milli 2024 og 2025 var ríflega 27%. Það má einkum rekja til fækkunar  starfsfólks milli ára. Aukning í losun vegna viðskiptaferða var um 22% milli ára, sem tekur til losun vegna flugferða, gistingu erlendis og innanlands, ásamt eldsneytisnotkunar vegna viðskiptaferða.

Losun fyrir heitavatns- og rafmagnsnotkun hækkaði talsvert á milli ára, úr 3,3t CO2í árið 2023 í 15,4t CO2í árið 2024 en lækkar í ár í 12,0t CO2í. Aukning frá árinu 2023 er einkum vegna breyttrar aðferðafræði og vegna nýs reikningsstuðuls frá Umhverfisstofnun, auk þess sem umfang frumgagna er mun meira en frá árinu áður. Þá hefur 16% aukning í stöðugildum starfsfólks milli 2023 og 2024 einnig áhrif. Hins vegar skýrist lækkunin milli áranna 2024 og 2025 af 27% samdrætti í stöðugildum starfsfólks.

Áhrifamælaborð umhverfis

Losun gróðurhúsalofttegunda (tCO2í)

Súlurit yfir losun gróðurhúsalofttegunda

Losunarkræfni

Losunarkræfni

Uppruni losunar gróðurhúsalofttegunda

Kökurit yfir uppruna losunar gróðurhúsalofttegunda samanborið við árið í fyrra

Losun frá ferðum starfsfólks

Losun frá ferðum starfsfólks lækkar um tæplega 27 prósent miðað við akstur til og frá vinnu á milli ára

Orkunýting í starfseminni

Myndin sýnir tölur yfir orkunýtingu í starfsemi KPMG

Umhverfisstefna

KPMG fylgir formlegri umhverfisstefnu og setur sér markmið um að minnka losur gróðurhúsalofttegunda

Orkunotkun í starfseminni

Orkunotkun í starfseminni

Úrgangur

Úrgangur

Vatnsnotkun

Vatnsnotkun í starfseminni