Vinnustaðastefna

Einn af drifkröftum okkar stefnu er Ánægt starfsfólk þar sem áherslan er á að vera eftirsóknarverður vinnustaður með fjölbreytt og framúrskarandi starfsfólk. Frá árinu 2022 höfum við unnið eftir vinnustaðastefnu sem byggir á eftirfarandi áherslum:  

Vinnustaðastefna KPMG sett fram í texta á mynd

Heilsa og vellíðan

Stefna félagsins byggir á því að starfsfólk okkar er stærsta auðlind félagsins. Við höfum því haldið áfram þeirri áherslu að fjárfesta í heilsu og vellíðan starfsfólks sem við teljum að skilar sér í ánægðara starfsfólki, betri þjónustu til viðskiptavina og auknu virði fyrir félagið auk þess sem að vinnustaðurinn verður eftirsóknarverðari fyrir öfluga umsækjendur. Mótuð hefur verið metnaðarfull heilsustefna sem byggir á því að auka ánægju og vellíðan starfsfólks með fjölmörgum aðgerðum sem eiga að vera hvetjandi og heilsueflandi fyrir starfsfólk.  

Starfsánægjukannanir

Til þess að mæla starfsánægju og upplifun starfsfólks af KPMG sem vinnustað og þeim aðgerðum sem farið hefur verið í erum við bæði með stóra árlega könnun og stuttar reglulegar púlsmælingar með Moodup. Mikil áhersla hefur verið lögð á að ná góðri þátttöku í þessum mælingum til að stjórnendur félagsins fái marktækar niðurstöður til að vinna úr. Í nýafstaðinni árlegri starfsánægjukönnun KPMG fyrir árið 2025 var þátttaka 90% og mældist starfsánægja og starfshelgun 89%. Þá sögðust 94% starfsfólks mæla með KPMG sem frábærum vinnustað sem við erum mjög stolt af.

Reglulegar Moodup púlsmælingar sem mæla ánægju, álag, samskipti og fleira styðja einnig við þetta og mælist starfsánægja þar um 7,9 á 1-10 skala. Helsta tækifæri okkar í þessum mælingum er að halda áfram að vinna í að dreifa betur úr álagi með aukinni skilvirkni og samstarfi, þjálfa stjórnendur í endurgjöf auk ýmissa þátta sem hefur verið unnið úr til þess að bæta starfsumhverfi KPMG.

Starfsfólk KPMG í hóp á æfingu

September var heilsumánuður

Í september var sérstakur heilsumánuður þar sem var áhersla var lögð á heilsu á heildstæðum grunni, þ.e. næring, svefn og andleg- og líkamleg heilsa. Þá var bætt í úrval ávaxta, hollari hádegisverður, fræðslumolar á upplýsingaskjáum og svo fengum við erindi um svefn frá Dr. Erlu Björnsdóttur.

Við höfum einnig boðið upp á ýmis önnur áhugaverð og heilsutengd erindi eins og að fá Ásdísi Hjálmsdóttur ólympíufara til að vera með mjög heilsuhvetjandi erindi um markmiðasetningu, auk þess að fá Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa til að vera með erindi um fjárhagslega heilsu. 

Blóðbankabíllinn

Við fengum Blóðbankabílinn í heimsókn til okkar á bílaplanið í Borgartúni og heimsóttu fjölmörg bílinn þar sem var bæði hægt að gefa blóð og gerast blóðgjafi í fyrsta skipti. Á árinu voru einnig í boði heilsufarsmælingar og bólusetning gegn árlegri inflúensu. 

Andleg og líkamleg heilsa starfsfólks KPMG

Þegar kemur að  andlegri- og líkamlegri heilsu stendur starfsfólki fjölbreytt þjónusta til boða. Á velferðartorgi Kara Connect þar sem það getur bókað allt að fjóra tíma á ári hjá fjölbreyttum sérfræðingum sem sérhæfa sig í andlegri heilsu. Í ár innleiddum við nýja stjórnendalausn frá Köru Connect þar sem stjórnendur félagsins geta bókað tíma hjá stjórnenda- og markþjálfum.

Á Höfuðborgarsvæðinu hafa hópatímar undir handleiðslu þjálfara staðið starfsfólki til boða í fjölda ára. Þá hefur félagið tekið á leigu sal í Íþróttahúsi fatlaðra í Hátúni og starfsfólk sjálft greitt fyrir þjálfunina. Í ár var tekin ákvörðun um að bjóða tímana sem eru tvisvar í viku endurgjaldslaust til þess að hvetja starfsfólk til hreyfingar og auka aðgengi allra.

Fjölbreytileiki og inngilding

Í takt við stefnu okkar leggjum við áherslu á að starfsfólki okkar líði vel og geti verið það sjálft í vinnunni. Við viljum að KPMG sé vinnustaður þar sem fjölbreytileiki er virtur og öll hafi jöfn og sanngjörn tækifæri óháð því hver þau eru og hvaðan þau komu. Hluti af því eru reglulegar kannanir sem snúa að sálrænu öryggi og viðbrögð við þeim ásamt fræðslu. Global Values Week er orðinn árlegur viðburður þar sem KPMG á heimsvísu tileinkar heilli viku gildum okkar og hefur starfsfólk úr ýmsum fræðsluerindum að velja sem snúa að þeim ásamt jafnrétti og fjölbreytileika.

Þá héldum við áfram samstarfi okkar og stuðningi við Hinsegin daga sem má lesa nánar um í kaflanum KPMG og samfélagið.

Fæðingarorlof

Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra hjá KPMG

Í ár var tekið stórt skref þegar kynnt voru sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra hjá KPMG. Stuðningurinn er fjórþættur og felur í sér að barnshafandi getið tekið launað leyfi á lok meðgöngu skv. læknisráði í allt að fjórar vikur án þess að ganga á veikindarétt sinn. Starfsfólk safnar launuðu orlofi á meðan það er í fæðingarorlofi og þau sem hafa verið í langtíma fæðingarorlofi geta komið til baka í tímabundið hlutastarf sem aðlögunarferli. Að auki greiðir félagið fæðingarorlofsstyrk í formi eingreiðslu upp á 200.000 kr. fyrir starfsfólk sem tekur fjórar vikur eða meira af fæðingarorlofi en með þessu viljum við hvetja starfsfólk af öllum kynjum til að þau nýti sér fæðingarorlofsrétt sinn á þessum mikilvægu tímamótum í þeirra lífi.

Samskipti við nærsamfélagið

Við viljum hafa jákvæð áhrif á samfélagið í kringum okkar. Á síðasta starfsári höfum við unnið að því einkum með tvennum hætti. Annars vegar hefur starfsfólk tækifæri til að verja því sem nemur einum vinnudegi á ári til samfélagslegra verkefna. Verkefnin þurfa að stuðla að jákvæðum áhrifum á fólk eða umhverfi. Í ár jókst fjöldi tíma sem starfsfólk nýtt í samfélagsleg verkefni umtalsvert. Samtals voru 41 dagur nýttur í ár samanborið við 19 daga á fyrra ári sem nemur 116% aukningu.  

Hins vegar höldum við ýmsa viðburði og fræðslufundi um þau málefni sem við höfum sérþekkingu á ásamt námskeiðum fyrir viðskiptavini. Nánari umfjöllun um fræðslufundi og viðburði má finna í kaflanum Þekkingarmiðlun. Einnig sinnir hluti starfsfólks okkar kennslu við menntastofnanir og heldur reglulega fræðsluerindi hjá fyrirtækjum og félögum.

Þjálfun og endurmenntun

Sem þekkingarfyrirtæki leggjum við ríka áherslu á stöðuga þróun þekkingar og færni. Nýtt starfsfólk fær sérstaka nýliðaþjálfun í upphafi starfs og þá fer allt starfsfólk árlega í gegnum skyldunámskeið sem fjalla um viðskiptasiðfræði, óhæði og öryggi gagna.

Starfsfólki stendur einnig til boða fjölbreytt fræðsla  í samræmi við sín hlutverk og markmið sem er skipulögð í samráði við stjórnendur. Löggiltir endurskoðendur og innri endurskoðendur sækja sem dæmi reglulega innri og ytri námskeið til að tryggja viðeigandi þekkingu og uppfylla kröfur um endurmenntun endurskoðenda. Starfsfólk okkar sækir einnig þjálfun við hæfi í gegnum norrænt samstarf okkar þar sem fólk frá mismunandi aðildarlöndum KPMG sameinast í fjölbreytta þjálfun, svo sem í stjórnun og leiðtogafærni. 

Starfsfólk KPMG að spjalla saman

Áhrifamælaborð stefnu um fólk og félagslega þætti

Kynjaskipting eftir starfshópum

Súlurit um kynjaskiptingu eftir stafshópum á milli áranna 2024 og 2025

Aldursskipting

Súlurit um aldursskiptingu starfsfólks eftir stafshópum á milli áranna 2024 og 2025

Launajafnræði

Tölfræði um launajafnræði hjá starfsfólki KPMG

Kynjaskipting stjórnenda

Súlurit um kynjaskiptingu stjórnenda borið saman milli ára 2024 og 2025

Kynjaskipting eftir starfshlutfalli

Súlurit um kynjaskiptingu eftir starfshlutfalli borið saman milli ára 2024 og 2025

Starfsmannavelta

Línurit sem sýnir þróun starfsmannaveltu frá 2016 til 2025

Þjóðerni

Þjóðerni starfsfólks

Fræðsla og starfsþjálfun

Starfsfólk varði að meðaltali 88 klukkustundum í fræðslu og starfsþjálfun á árinu