KPMG og samfélagið

KPMG á Íslandi, sem hefur starfað frá árinu 1975, leggur ríka áherslu á jákvæð áhrif á  samfélagið og sjálfbærni í starfsemi sinni. Félagið leggur sitt af mörkum til að skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild, í samræmi við alþjóðlega stefnu félagsins um ábyrgð og hagsæld.

Skattaspor og skattastefna KPMG

Við hjá KPMG höfum unnið að því að greina skattspor félagsins síðastliðin ár. Í greiningunni er að finna yfirlit yfir alla greidda skatta félagsins og eru tölurnar í milljónum króna.

Skattaspor KPMG ehf.

Stjórnskipulag sjálfbærnimála

Framkvæmdastjóri er ábyrgðaraðili sjálfbærni hjá KPMG. Hlutverk hans er að hafa yfirsýn og eftirlit með sjálfbærnimálum ásamt því að samþykkja og bera ábyrgð á stefnu félagsins.

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á innleiðingu þeirra mála sem heyra undir hvert starfssvið ásamt því að hafa yfirsýn yfir markmið og stefnu á hverju sviði.

Ævar starfsmaður KPMG Law situr við borð á fundi og ræðir við samstarfsfélaga

Mikilvægisgreining

Árið 2024 var önnur tvíátta mikilvægisgreining KPMG framkvæmd. Unnið var út frá aðferðafræði KPMG Global við greiningu, áhrifastefna KPMG Global (e. Impact plan) skoðuð og niðurstöður mikilvægisgreininga frá KPMG í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi teknar til greina. Fyrirliggjandi gögn voru að lokum aðlöguð starfsemi KPMG á Íslandi. Tvær vinnustofur voru haldnar með starfsfólki KPMG, sem valið var af handahófi, til að greina fjárhagslegt mikilvægi og áhrifamikilvægi, ásamt því að könnun var send út til alls starfsfólks. Svörun úr könnun var 35%. Ein vinnustofa var haldin með framkvæmdastjórn, þar sem meginþungi vinnunnar var á áhrifamikilvægi en einnig var fjallað um virðiskeðju og hagaðila til að undirbyggja hagaðilasamráð. Þörf er á dýpri greiningu á virðiskeðju.

Niðurstöður greiningarinnar sýna fram á að stjórnarhættir og félagslegir þættir vega þyngst, líkt og í mikilvægisgreiningu KPMG árið 2021, þótt ljóst sé að starfsemin geti einnig haft áhrif á sviði hagsældar og umhverfis. Eftirfarandi eru þeir mikilvægisþættir sem teljast mikilvægir í starfsemi KPMG út frá áhrifum, áhættum og tækifærum starfseminnar. Mikilvægisþáttum er ekki raðað í röð eftir mikilvægi:

Fólk

  • Hæft starfsfólk og helgun 
  • Heilsa, öryggi og vinnuálag 
  • Fjölbreytileiki, inngilding og jöfnuður 

Stjórnarhættir

  • Siðferði, heilindi og óhæði
  • Tilgangur, menning og gildi 
  • Gagnsæi og ábyrgð 
  • Upplýsingaöryggi 
  • Viðeigandi gæðaþjónusta (sem þjónar almannahagsmunum)

Umhverfi

  • Mildun loftslagsáhrifa, samdráttur í losun 

Hagsæld

  • Rekstrar- og fjárhagslegt þanþol 
  • Tækni og nýsköpun 
  • Áhrifarík samfélagsþátttaka 
Kort af Íslandi á gráum bakgrunni sem sýnir staðsetningu allra 14 starfsstöðva KPMG á landinu

Þjónusta KPMG um allt land

Markmið KPMG á Íslandi er að veita fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum um allt land gæða þjónustu á breiðum grunni.

KPMG veitir þúsundum aðila mikilvæga grunnþjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, rekstrarráðgjafar, skatta- og lögfræðilegra málefna. Þjónusta okkar er mikilvæg viðskiptavinum okkar til að stunda löglega, og sjálfbæra viðskiptahætti og til að ná árangri í sínu starfi. Stefna KPMG er að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og við viljum vera fyrsta val viðskiptavina á markaðnum. Starfsstöðvar KPMG eru 14 talsins og dreifast um allt land.

Sérþekking innan atvinnugreina

Hjá KPMG er eitt af okkar meginmarkmiðum að vera fyrsti valkostur viðskiptavina. Til að ná því leggjum við áherslu á að skilja rekstrarumhverfi og þarfir bæði einkafyrirtækja og opinberra aðila á hverjum tíma. Í gegnum árin höfum við byggt upp sérhæfðan vettvang innan KPMG sem miðar að því að skapa djúpa þekkingu á lykilatvinnugreinum á Íslandi. Þessi vettvangur samanstendur af reynslumiklu starfsfólki sem hefur unnið með fjölbreyttum fyrirtækjum auk sérfræðinga í rekstri sem nýtist hverri atvinnugrein sem best.

Við höldum góðu samstarfi við KPMG á alþjóðlegum vettvangi, sérstaklega á Norðurlöndum, þar sem við deilum þekkingu á þróun og nýjustu straumum innan helstu atvinnugreina. Dæmi um svið þar sem við höfum lagt sérstaka áherslu á að byggja upp sérþekkingu eru sprota- og nýsköpunarfyrirtæki, sem og sveitarfélög.

•       Opinberir aðilar (Sveitarfélög, opinberar stofnanir og fyrirtæki)

•       Fjármálaþjónusta

•       Sprotar og hraðvaxtarfélög

•       Orka og innviðir

•       Ferðaþjónusta

•       Fasteignafélög og verktakar

•       Verslun og þjónusta

•       Sjávarútvegur og fiskeldi

Þekkingarmiðlun

Hjá KPMG leggjum við ríka áherslu á að miðla þekkingu okkar á mikilvægum þáttum í rekstri fyrirtækja. Á starfsárinu héldum við fjölda funda og viðburða þar sem ýmis viðfangsefni voru til umfjöllunar. Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem mættu á viðburðina hjá okkur á árinu. 

Yfirlit yfir fundi, ráðstefnur og námskeið

Yfirlit yfir þekkingarmiðlun og alla þá viðburði sem KPMG hélt á fjárhagsárinu

Öflug þátttaka í atvinnulífinu

KPMG tekur þátt í fjölmörgum verkefnum og er aðili að helstu samtökum í íslensku atvinnulífi. 

Starfsnám og tengsl við háskólasamfélagið

Síðastliðin ár höfum við boðið upp á starfsnám fyrir nemendur á háskólastigi. Áhersla hefur verið á nemendur í viðskipta- , verk- og tölvunarfræði. Er það í samræmi við stefnu okkar um að vera eftirsóknarverður vinnustaður og beita áhrifum okkar til góðs. 

Fjölmennar vísindaferðir hafa skapað fastan sess í viðburðardagatali okkar og höfum við boðið háskólanemum í ofangreindum deildum að koma til okkar. Í vísindaferðum kynnum við fyrirtækið en leggjum sérstaka áherslu á vinnustaðinn og innihaldsrík samtöl við nemendur. Árlega höfum við tekið þátt í Framadögum í HR þar sem við heilsum upp á fjölda nemenda og til viðbótar hafa sérstakar heimsóknir staðið þeim nemendum sem eru skráðir í starfsnám til boða þar sem við kynnum bæði fyrirkomulag starfsnáms og svörum spurningum áhugasamra nemenda.

Starfsnemar hjá KPMG

Starfsnám hefur verið í boði fyrir grunn- og framhaldsnema á ráðgjafar- og endurskoðunarsviði í samvinnu við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Starfsnámið telur um 120-300 klst. í verkefni hjá okkur og er áherslan á hagnýt raunverkefni sem gagnast nemendunum jafnt sem félaginu. Starfsnámið er hluti af námi nemendanna og fá þau einingar fyrir ásamt starfsreynslu sem gefur þeim forskot á atvinnumarkaðnum. Fjöldi starfsnema á árinu voru níu og var fimm boðið starf að starfnámi loknu og þáðu þau öll starfstilboðið.

KPMG í samfélaginu

KPMG leggur ríka áherslu á að vera virkur þátttakandi í samfélaginu og starfa í samræmi við stefnu sína um sjálfbærni sem skilar jákvæðum áhrifum. Með heilindi og ábyrgð að leiðarljósi styður félagið við mikilvæg málefni, eflir tengsl við hagaðila og vinnur að því að skapa langtímavirði fyrir alla sem tengjast starfsemi þess.

Hinsegin dagar

Hinsegin dagar voru haldnir dagana 5.-10. ágúst 2025 þar sem yfirskriftin var ,,Samstaða skapar samfélag“. Við sem samfélag höfum rými fyrir okkur öll, óháð því hvernig við skilgreinum okkur eða hvern við elskum. KPMG var áfram samstarfsaðili  Hinsegin daga og við höldum áfram að vera forvitin, fræðast og tökum þátt í að skapa samfélag þar sem allt fólk á jafnan tilverurétt.

Fáni Hinsegin daga blaktir á fánastöng fyrir utan höfuðstöðvar KPMG í Borgartúni 27
Starfsfólk KPMG í Reykjadal að hjálpa til við vorhreingerningu í maí 2025

Reykjadalur

Reykjadalur eru sumarbúðir í Mosfellsdal fyrir fötluð börn og ungmenni. Árlega koma um 300 einstaklingar í Reykjadal á aldrinum 8-21 árs. Þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt og ævintýrin látin gerast.

Hópur starfsfólks KPMG slóst í hóp með Félagi löggiltra endurskoðenda (FLE) í vor og varði einum vinnudegi við að hjálpa starfsfólki Reykjadals við að standsetja sumarbúðirnar fyrir fyrstu gesti sumarsins.

Reykjavíkurmaraþon

Yfir 40 hlauparar á vegum KPMG tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í hinum ýmsu vegalengdum, allt frá 3 km skemmtiskokki yfir í heilt maraþon. Hlaupahópur KPMG hljóp í ár til styrktar minningarsjóðs Bryndísar Klöru sem lést í kjölfar hnífsárásar á menningarnótt 2024. Minningarsjóðurinn stendur KPMG nærri þar sem faðir Bryndísar er fyrrum samstarfsfélagi okkar ásamt því að KPMG lagði sjóðnum lið með stofnun hans og umsjón. Alls söfnuðu hlauparar KPMG samtals 748.000 kr. til styrktar minningarsjóðsins og annarra góðra málefna. 

Hópur starfsfólks KPMG sem hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst 2025, rétt fyrir hlaup

Golfmælaborð KPMG - nýsköpun í gagnadrifinni greiningu

Á árinu hélt KPMG áfram að sýna leiðandi hlutverk í nýtingu gagna og viðskiptagreind með því að þróa golfmælaborð í samstarfi við Golfsamband Íslands (GSÍ). Markmiðið er að hjálpa kylfingum að taka betri ákvarðanir í sínum leik með því að veita innsýn í tölfræðina á bak við Íslandsmótin.

Mælaborðið byggir á greiningu gagna frá mótum GSÍ allt frá árinu 2001 og setur fram mikið magn upplýsinga á einfaldan og sjónrænan hátt. Þar má meðal annars sjá:

  • Hvaða holur hafa reynst erfiðastar á Íslandsmótum?
  • Hverjir hafa náð besta skori að meðaltali?

Verkefnið endurspeglar metnað KPMG í að veita framúrskarandi þjónustu í gagnagreiningu og viðskiptagreind. Með öflugri gagnatengingu, mælaborðum og sjálfvirkri skýrslugjöf hjálpum við viðskiptavinum að nýta gögn á sem skilvirkastan hátt og skapa virði úr upplýsingum.

Golfmælaborðið er aðeins eitt dæmi um hvernig KPMG nýtir sérhæfða þekkingu í gagnahögun og greiningu til að skapa lausnir sem bæta upplifun og árangur – bæði í íþróttum og í rekstri.

Golfdagar KPMG og GSÍ - samstarf sem eflir íþróttina

Á árinu hélt KPMG áfram samstarfi við Golfsamband Íslands (GSÍ) og fleiri aðila um Golfdagana, sem eru fjölskylduvænir viðburðir ætlaðir til að kynna golfíþróttina fyrir nýjum kylfingum og styrkja tengsl innan golfhreyfingarinnar.

Golfdagarnir fóru fram á Egilsstöðum, í Stykkishólmi og á Sauðárkróki. Á hverjum viðburði var boðið upp á:

  • Kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir leiðsögn PGA golfkennara
  • Skemmtilega leiki og fræðslu fyrir alla aldurshópa
  • Grillveislu og gjafir fyrir gesti

Mæting var góð og veðrið lék við þátttakendur, sem skapaði frábæra stemningu. Verkefnið hefur heppnast vel og endurspeglar metnað KPMG í að styðja við samfélagið og efla íþróttir sem byggja á jafnræði og inngildingu.

Mynd frá golfdegi KPMG, GSÍ og PGA í Stykkishólmi

Golfdagur KPMG og GSÍ í Stykkishólmi

Áhrifamælaborð

Efnahagslegt framlag í milljónum króna

Tölur um efnahagslegt framlag KPMG

Ráðningar í fullt starf

Súlurit ráðninga í fullt starf á árinu

Starfsnemar

Myndin sýnir að á árinu fékk KPMG til sín 9 starfsnema og fimm þeirra fengu ráðningu að starfsnámi loknu.