Við erum þekkingarmiðað þjónustufyrirtæki sem styður viðskiptavini á öllum sviðum atvinnulífsins. Í samræmi við markmið okkar um að vera fyrsti kostur viðskiptavina leggjum við áherslu á að byggja upp traust og áreiðanleg samskipti. Þetta styrkir okkur í að uppfylla hlutverk okkar á skilvirkan og faglegan hátt.
Við trúum því að góðir stjórnarhættir séu lykillinn að því að geta boðið fjölbreytta og víðtæka þjónustu fyrir ólíkar atvinnugreinar. Með því að fylgja gildum okkar sýnum við heiðarleika og ábyrgð í daglegu starfi og stuðlum að jákvæðum áhrifum á samfélagið.
Viðskiptasiðferði og gæðamál
Við leggjum mikla áherslu á viðskiptasiðferði sem undirstöðu alls starfs okkar. Gildin sem við styðjumst við leiða okkur áfram og endurspegla skuldbindingu okkar til að vinna af heilindum í samskiptum og viðskiptum við alla hagaðila.
Í takt við gildi okkar fylgjum við alþjóðlegum siðareglum KPMG Global og árlega staðfestir starfsfólk og hluthafar félagsins skuldbindingu sína um að starfa samkvæmt settum siðareglum. Eins og áður hefur allt okkar starfsfólk sótt þjálfun og endurnýjað staðfestingu sína um að hafa fylgt siðareglum félagsins.
Grun um mögulegt misferli má tilkynna í gegnum alþjóðlegt tilkynningakerfi þar sem nafnleynd er tryggð og uppljóstrarar njóta verndar. Við tryggjum óhæði og gæði í allri þjónustu og uppfyllum strangar kröfur sem byggja á alþjóðlegum stöðlum, m.a. ISQM 1 um gæðastjórnun. Sem endurskoðunarfyrirtæki uppfyllum við strangar kröfur um gæði, óhæði og siðferði. Þessar kröfur byggja á alþjóðlegum siðareglum KPMG Global og reglum Alþjóðasamtaka endurskoðenda (IFAC).
Gagnaöryggi
Rekstur upplýsingatæknikerfa okkar byggir á skýrri upplýsingaöryggisstefnu og skipulögðu stjórnkerfi upplýsingaöryggis sem byggir á ISO-stöðlunum 27001 og 27002. Kerfið er háð reglubundnu innra eftirliti, bæði innan fyrirtækisins og af hálfu KPMG Global.
Til að styrkja þessa umgjörð höfum við sérstaka upplýsingaöryggisnefnd, upplýsingaöryggisstjóra og persónuverndarfulltrúa.
Fylgdi félagið sömu starfsaðferðum og áður. Á haustmánuðum voru haldin hefðbundin námskeið í net- og upplýsingaöryggi ásamt fræðslu um persónuvernd. Á vormánuðum var notendaskilmálum komið til starfsfólks til að útskýra stefnu og reglur í þessum málaflokkum og miðla fræðslu um varnir gegn vefveiðum (phishing). Auk þess voru sendar tilkynningar eftir þörfum þegar sérstakar áhættur komu upp sem kröfðust aukinnar árvekni eða viðbragða.
Sem þekkingarfyrirtæki leggjum við ríka áherslu á gagnaöryggi sem grunnþátt í okkar starfsemi.
Gagnsæi
Við gefum út gagnsæisskýrslu og ársskýrslu árlega til að sýna ábyrgð og upplýsa um þróun, tækifæri og áhættur.
Sem tilkynningarskyldur aðili uppfyllum við allar lagalegar kröfur á sviði aðgerða gegn peningaþvætti og framkvæmum áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum okkar. Ef grunur vaknar um spillingu, mútur eða önnur lögbrot ber okkur að tilkynna slíkt til hlutaðeigandi yfirvalda. Með skýrum ferlum og aðgerðum leggjum við okkar af mörkum til að koma í veg fyrir ólögmæt viðskipti. Allt starfsfólk er hvatt til að tilkynna ef grunur vaknar um grunsamlega eða óeðlilega starfshætti.
Stjórnendur og ábyrgðaraðilar verkefna eru einnig skyldugir til að skrá hlutabréfaeign sína í KPMG Independence Compliance System (KICS), sem tryggir óhæði í þjónustu okkar og verndar hagsmuni allra hagaðila.