Hér finnur þú greinar og samantektir sem ætlað er að styðja sveitarfélög í daglegum verkefnum og langtímahugsun. Við miðlum reynslu, greiningum og góðum dæmum sem nýtast við að bæta þjónustu við íbúa, efla rekstur og styðja við upplýstar ákvarðanir í flóknu umhverfi.
Félagsþjónusta er annar stærsti útgjaldaliður sveitarfélaga á eftir fræðslumálum. Áskorunin er að auka skilvirkni, minnka sóun, tryggja gæði, bæta vinnuumhverfi og halda utan um fjárhaginn á sama tíma.
Framsýnir leiðtogar sveitarfélaga um allan heim eru að kveðja áratuga gamlar hugmyndir um hlutverk stjórnsýslu og horfa til nýrra tíma þar sem þjónusta við íbúa og fyrirtæki er stafræn og sjálfbærni í forgangi.
Ásinn er framsækin tæknilausn sem er þróuð af KPMG og byggir á áralangri sérfræðiþekkingu KPMG í áætlanagerð og fjármálum sveitarfélaga. Fjárhagsgögn eru sótt sjálfvirkt í fjárhagskerfi sveitarfélagsins. Öll áætlunarvinna er í gegnum þægilegt vefviðmót sem hentar öllum.