Meginhlutverk sveitarfélaga er að veita íbúum fjölbreytta og öfluga grunnþjónustu. Kröfur um gæði og umfang þeirrar þjónustu fara sífellt vaxandi og því er mikilvægt að hún sé veitt með hagkvæmum og skilvirkum hætti, í samræmi við gæðakröfur.
Flestar ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi sveitarstjórna hafa áhrif á fjármál og rekstur með einum eða öðrum hætti. Skýr stefna í fjármálum og markviss áætlanagerð skapa mikilvægan grunn að ákvörðunum sem sveitarstjórnir taka og snúa jafnan að forgangsröðun í rekstri og fjárfestingum. Fjárhagsáætlun er því eitt allra mikilvægasta stjórntæki sveitarfélaga og mikil tækifæri fólgin í að nýta hana markvisst til að taka betri ákvarðanir.
Áætlanagerð er kjarninn í rekstri sveitarfélaga
Á næstu vikum hefst ein mikilvægasta vinna ársins hjá stjórnendum sveitarfélaga og kjörnum fulltrúum, við að móta og leggja fram fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
Það kann að vera freistandi að líta á áætlanagerðina sem tæknilegt verkefni til að uppfylla lagalegar skyldur. Safna saman tölum úr ýmsum áttum, fylla út töflur og klára ferlið. Ólíklegt er að slík nálgun leiði til markvissra og vel ígrundaðra ákvarðana.
Vandað fjárhagsáætlunarferli felur í sér ákvarðanir um ráðstöfun fjármuna í tilgreind verkefni og er þannig mikilvægt verkfæri til að greina rekstur og þjónustu við íbúa, draga fram valkosti, forgangsraða verkefnum og taka upplýstar ákvarðanir.
Tímafrekt og flókið ferli
Vinna við áætlanagerð er tímafrek og stundum brotakennd. Gögn eru gjarnan dreifð, rekstur fjölbreyttur og flókinn, ferli óskýr og skortur á innbyrðis samræmi. Við þær aðstæður getur vinnan orðið bæði erfið og tímafrek og hætt við að niðurstaðan verði áætlun sem nýtist ekki nægilega vel sem stjórntæki í rekstri.
Án skýrra fjárhagslegra markmiða er einnig hætta á að ákvarðanir verði viðbragðsdrifnar fremur en byggðar á skýrri stefnumótun til lengri tíma. Auknar kröfur um gagnsæi, ábyrgð og skýra forgangsröðun í starfseminni, kalla á markvissa áætlanagerð sem nýtist sem stjórntæki í rekstri.
Um árabil hefur KPMG unnið að fjölbreyttum verkefnum með sveitarfélögum og öðlast mikilvæga innsýn í það hvað skapar mest virði í áætlanagerð. Reynslan sýnir að þegar samræmdar upplýsingar, skilvirk ferli, þekking og innsæi koma saman, þá verður áætlanagerðin einfaldari og markvissari. Styrkurinn liggur í breiddinni þar sem sérfræðingar KPMG vinna saman þvert á svið og tengja fjölbreytta þekkingu í eina heild í samstarfi við stjórnendur og kjörna fulltrúa.