Ákvæðið um lágmarksíbúafjölda tók efnislegum breytingum í þinglegri meðferð frumvarpsins. Frumvarpið gerði upphaflega ráð fyrir því að ráðherra gæti sameinað sveitarfélag, sem hefði íbúafjölda undir íbúalágmarkinu í þrjú ár samfleytt, öðru eða öðrum nærliggjandi sveitarfélögum. Töluverð andstaða var við þá útfærslu ráðuneytisins sem að mati margra umsagnaraðila gekk of nærri sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga og braut í bága við jafnræði og meðalhóf. Að mati meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis var „afar brýnt að ná fram samstöðu um þær breytingar sem ráðast [ætti] í til þess að efla sveitarstjórnarstigið“ og því var ákvæðinu breytt með ofangreindum hætti og heimild ráðherra felld niður.
Í umræðunni um lögbundinn lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga hljóta alltaf að vegast á tvö meginsjónarmið. Annars vegar stjórnarskrárbundinn sjálfstjórnarréttur sveitarfélaga sem kveður á um að sveitarfélög skuli ráða málefnum sínum sjálf, eftir því sem lög ákveða. Hins vegar koma upp sjónarmið um sjálfbærni sveitarfélaga. Sjálfbærni sveitarfélaga í víðu samhengi felur m.a. í sér hvort þau hafi sett sér skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun auk aðgerða svo að þeim markmiðum verði náð, hvort rekstur þeirra er sjálfbær, hvort þau hafi getu og burði til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og veita íbúum sínum lögbundna grunnþjónustu s.s. í félags- og fræðslumálum. Fjölmörg sveitarfélög sinna lögbundinni grunnþjónustu í samstarfi við annað eða önnur sveitarfélög t.a.m. í formi byggðasamlags eða með því að annað sveitarfélag taki að sér að veita þjónustuna. Með lagabreytingunum var reynt að ná utan um ofangreind meginsjónarmið, án þess að ganga of nærri sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga. Ekki eru þó allir sammála um að það hafi tekist og hafa gagnrýnisraddir verið uppi varðandi útfærslu ákvæðisins sem sumir telja ganga of langt.
Á Íslandi eru 64 sveitarfélög. Þar af eru 10 sveitarfélög með undir 250 íbúa. Þessi sveitarfélög eiga því að hafa skilað áliti um getu þeirra til að sinna lögbundnum verkefnum sínum eða hefja formlegar sameiningarviðræður við annað eða önnur sveitarfélög. Eftir næstu sveitarstjórnarkosningar mun fjöldi sveitarfélaga með undir 1.000 íbúa, vera 29. Þau sveitarfélög þurfa því að fara að huga að þeirri vinnu.