María Rós býr yfir víðtækri reynslu af starfsemi sveitarfélaga og opinberrar stjórnsýslu, með sérþekkingu á velferðarþjónustu og þróun opinberrar þjónustu. Hún hefur leitt stefnumótunar-, greiningar- og umbótaverkefni og unnið við verkefna- og breytingastjórnun auk þess að stýra víðtæku samráði við hagaðila.
María Rós býr jafnframt yfir viðamikilli stjórnendareynslu á sviði velferðarþjónustu og hefur leitt nýsköpunarverkefni og þróun gagnadrifinna lausna sem styðja við ákvarðanatöku, rekstur og árangur sveitarfélaga.