Skilvirk áætlanagerð er ein mikilvægasta forsenda farsæls reksturs sveitarfélaga. Hún er þó oft flókin þar sem hún byggir á gögnum frá mörgum aðilum, krefst samhæfingar ólíkra sviða og skýrra markmiða.
Til að skilja raunverulegar áskoranir sveitarfélaga leitaði KPMG beint til stjórnenda þeirra. Ítarleg könnun á vinnulagi og hindrunum í áætlanagerð lagði grunninn að þróun Ássins, nýrrar stafrænnar lausnar frá KPMG.
Niðurstöðurnar eru skýrar: Með einfaldara ferli, betri yfirsýn og skýrari markmiðasetningu má ná meiri árangri í fjármálum sveitarfélaga.
Helstu áskoranir í áætlunargerð sem nefndar voru í könnuninni eru:
- Tímafrekt ferli
- Erfitt að nálgast rauntímagögn
- Flókið að sameina áætlanir ólíkra sviða og deilda
- Markmið ekki nógu skýr