Skip to main content

      Í rekstri fyrirtækja og endurskipulagningu leggur ráðgjafarsvið KPMG áherslu á að auka virði fyrir viðskiptavininn á öllum stigum ákvörðunartöku ferlisins hvar sem félagið er statt í hagsveiflunni. 

      Við erum með stóran hóp sérfræðinga sem veita fjárfestum ráðgjöf á öllum stigum fjárfestingarinnar - allt frá því að hugmynd um kaup kviknar til hugsanlegs viðsnúnings á rekstri á erfiðum tímum.  

      Reynsla okkar og það fjölbreytta innsæi sem sérfræðingar okkar búa yfir innan ólíkra atvinnugreina gefur okkur einstaka innsýn sem gerir okkur að betri ráðgjöfum og eykur virði þjónustu okkar. Við ábyrgjumst að sérfræðingar okkar muni veita þér hlutlæga ráðgjöf og við aðstoðum þig á sama tíma við að lágmarka þá áhættu sem fylgir slíkum viðskiptum.



      Fjármálastjórn

      Styrk áætlanagerð skiptir höfuðmáli

      Við hjálpum viðskiptavinum að þróa skýrar, áreiðanlegar og hagnýtar stjórnunarskýrslur, fjárhagsáætlanir og spáferla sem styðja við stefnumótun, árangursstjórnun og betri ákvarðanatöku. Lausnir okkar eru samþættar daglegum rekstri og byggja á traustum gögnum og skýrri ábyrgð.

      Sérfræðingar okkar veita markvissan stuðning við innleiðingu og eftirfylgni áætlana, meðal annars með þátttöku í reglulegum uppgjörsfundum og greiningu á frávikum, með það að markmiði að tryggja stöðugan árangur í fjármálum.



      • Áætlanagerð
      • Líkanagerð vegna áætlanagerðar
      • Breytingastjórnun við innleiðingu

      Eitt mikilvægasta verkefnið í fjármálum er styrk áætlanagerð sem endurspeglar stefnu fyrirtækja sem gerir stjórnendum jafnframt kleift að meta stöðu og bregðast við frávikum um leið og þau verða.
      Guðrún Björk Stefánsdóttir

      gstefansdottir@kpmg.is

      woman

      Viðskiptagreind umbreytir rekstrinum

      Með viðskiptagreind getur þú umbreytt gögnum úr rekstrinum í verðmætar upplýsingar sem styðja þig við rétta og tímanlega ákvarðanatöku.

      Við getum aðstoðað við sjálfvirka framsetningu á skýrslum, rekstrarmælaborðum og öðrum gagnagreiningum sem spara tíma, auka virði og bæta yfirsýn.

      Gögn hjálpa þér við að sjá heildarmyndina hvort sem greina þarf eldri upplýsingar, rauntímagögn eða spá fyrir um hvað muni gerast á næstunni. Sú sýn gerir þér kleift að taka upplýsta ákvörðun, allt frá stefnumótun til beinna samskipta við viðskiptavini og hagsmunaaðila.

      Við aðstoðum þig við

      • Að skilgreina mælikvarða

        Til að undirbúa stefnumarkandi aðgerðir og bæta þjónustu við viðskiptavini og hagsmunaaðila. 

      • Ítra núverandi skýrsluumhverfi

        Til að einfalda reglulega skýrslugjöf, t.d. gagnvart stjórn og starfsfólki og spara þar með tíma og fyrirhöfn.

      • Hönnun mælaborða sem endurspegla lykilmælikvarða

        Til að öðlast betri innsýn, taka upplýstar ákvarðanir og spá fyrir um framtíðina. 

      • Greiningu tækifæra

        Til hagræðingar, bæta greiningu á mögulegum veikleikum og finna áhættuþætti í rekstri.

      • Skilgreiningu hlutverka og þjónustuveitingu fjármálasviðs

        Til að bæta þjónustu til innri og ytri viðskiptavina og hagsmunaaðila. Sjálfvirknivæða einfaldari verk og einblína á verðmætari liði í rekstrinum. 

      Nánari upplýsingar veitir

      Guðrún Stefánsdóttir

      Partner | Head of Transaction Services

      KPMG á Íslandi


      Þarftu að ná umbótum í rekstri?

      Sérfræðingar okkar búa að mikilli þekkingu og reynslu af greiningum og úttektum auk þess að aðstoða við innleiðingu umbóta til að skapa aukið virði og jafnframt mæta auknum kröfum og tækniframförum.



      Við aðstoðum þig með

      • Úrbótatækifæri
        Greiningar á tækifærum til að bæta fjárhagslega ferla
      • Innleiðingu

        Innleiðingu á úrbótum ferla að greiningu lokinni

      • Þarfagreiningar

        Framkvæmd þarfagreininga fyrir innleiðingu á nýjum fjárhagskerfum og lausnum

      • Skilgreiningar á hlutverkum

        Aðstoð við að skilgreina verkefni og hlutverk  innan fjármálasviðs til að auka skilvirkni og gagnsæi

      Nánari upplýsingar veitir

      Guðrún Stefánsdóttir

      Partner | Head of Transaction Services

      KPMG á Íslandi


      Markmið og langtímaþróun

      Fjármagnsskipan fyrirtækja þarf að styðja við markmið þeirra og lang­tímaþróun. Því er lykilatriði að samræma stefnu fyrirtækisins við þá valkosti sem standa til boða við öflun láns‑ og hlutafjár, þannig að fjármögnunarleiðir styrki rekstur, vaxtarmöguleika og áhættustýringu.

      KPMG veitir heildstæða ráðgjöf í fjármögnunarferlinu, allt frá greiningu á stöðu og mótun fjármögnunarstefnu til stuðnings við framkvæmd og samskipti við fjárfesta og lánveitendur.

      Sérfræðingar okkar vinna með viðskiptavinum að því að greina lykilspurningar við öflun fjármagns, meta valkosti og taka upplýstar ákvarðanir í samræmi við skilgreind markmið og forsendur hvers fyrirtækis.

      Við aðstoðum þig með

      • Fjármagnsskipan

        Hvernig er best að hámarka virð allra hagaðila?

      • Greiningu valkosta

        Hvaða fjármögnunarleiðir eru mögulegar?

      • Samningagerð

        Hvernig á að ná fram hagstæðum skilmálum?

      • Frágang

        Hvernig á að stýra samskiptum

      • Traust

        Hvernig á að haga samskiptum við hagaðila og viðhalda traustu viðskiptasambandi

      Nánari upplýsingar veita

      Svanbjörn Thoroddsen

      Sviðsstjóri ráðgjafarsviðs

      KPMG in Iceland

      Magnús Erlendsson

      Hluthafi | Head of Deal Advisory

      KPMG á Íslandi



      Rekstrarráðgjöf


      Stefnumótun með KPMG byggir á hagnýtri og markvissri nálgun sem tekur mið af aðstæðum hverju sinni, frá rýni á núverandi stefnu til heildrænnar stefnumótunar og innleiðingar.

      Hvernig við aðstoðum

      • Stöðumat og rýni á stefnu
      • Sviðsmyndagreining
      • Heildræn stefnumótun
      • Stefna um vöxt, hagræðingu og stafræna umbreytingu
      • Stefna við kaup og sölu fyrirtækja
      • Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
      • Innleiðing og breytingastjórnun

      Hvenær á heildræn stefnumótun við?

      • Skortir sameiginlega sýn eða nýir stjórnendur taka við
      • Markmið eru óskýr eða styðja ekki árangur
      • Ytri ráðastórn og breytingar að ógna virðissköpun
      • Óskilvirkni eða ónýtt samlegð dregur úr virði
      • Þörf er á skýrri framtíðarsýn og langtímaáætlun

      Ávinningur

      • Skýr forgangsröðun og fókus á virðissköpun
      • Heildræn sýn á starfsemi og tengsl lykilþátta
      • Hagnýt og framkvæmanleg ráð
      • Samráð við lykilhagaðila
      • Stuðningur við árangursríka innleiðingu

      Sérstakar áherslur


      • Vöxtur og verðmætasköpun

        Greinum stöðu og mótum skýra stefnu út frá aðstæðum.
        Frá rýni á núverandi stefnu yfir í heildræna nálgun.

      • Sviðsmyndir og innsýn

        Setjum upp framtíðarsviðsmyndir sem varpa ljósi á óvissu og tækifæri. Styður við hraðari og betri ákvarðanir.

      • Hagræðing og skilvirkni

        Kortleggjum rekstur, greinum tækifæri og einföldum ferla.
        Markmið er aukin arðsemi og betri nýting auðlinda.

      • Kaup og sala fyrirtækja

        Styðjum við stefnumótandi ákvarðanir í fjárfestingum, samruna og endurskipulagningu.
        Fókus á að hámarka virði og lágmarka áhættu.


      Hafðu samband

      Sævar Kristinsson

      Verkefnastjóri á ráðgjafarsviði

      KPMG á Íslandi



      Samrunar og yfirtökur eru lykiltæki í vexti og umbreytingu fyrirtækja. Þau geta stutt við innkomu á nýja markaði, öflun þekkingar og tækni, eða einfaldað rekstur með sölu starfsemi sem fellur ekki að kjarnanum.

      Árangur ræðst af því að hámarka virði á sama tíma og áhættu er stýrt markvisst.

      Lykilatriði sem skipta máli

      • Vandaður undirbúningur er forsenda árangurs
      • Samþætting og aðskilnaður eru oft vanmetnir þættir
      • Skortur á greiningu á samlegð getur dregið úr ávinningi
      • Röskun í rekstri er algeng án skýrrar áætlunar

      Hvernig KPMG aðstoðar

      Við styðjum viðskiptavini í gegnum allt ferlið: Fyrir, á meðan og eftir viðskipti:

      • Greining og undirbúningur viðskipta
      • Mat á samlegð og virðissköpun
      • Samþætting reksturs eftir yfirtöku
      • Aðskilnað starfsemi og undirbúning sölu
      • Breytingastjórnun og stuðning við yfirstjórn

      Samþætting reksturs

      Við tryggjum að ávinningur skili sér í framkvæmd:

      • Samþættingaráætlun og verkefnastýring
      • Aðgerðaáætlanir fyrir yfirtökudag og fyrstu 100 dagana
      • Mæling og eftirfylgni með ábata
      • Stuðningur við stjórnendur í breytingaferli

      Aðskilnaður reksturs

      Við leiðum aðskilnað með skýrum og framkvæmdarbærum hætti:

      • Aðskilnaðaráætlun og verkefnastýring
      • Fýsileikamat og leiðaval
      • Þróun þjónustusamninga
      • Kostnaðarmat og uppsetning sjálfstæðs rekstrarlíkans

      Virði fyrir viðskiptavini

      • Skýr stefna

        Skýr stefna og markviss framkvæmd sem knýr árangur.

      • Minnkuð áhætta

        Markviss stjórnun áhættu í flóknum verkefnum.

      • Hraðari innleiðing

        Hraðari innleiðing sem skilar auknum ábata.

      • Alþjóðleg sérfræðiþekking

        Aðgangur að sérfræðiþekkingu og reynslu KPMG á heimsvísu.

      Hafðu samband

      Svanbjörn Thoroddsen

      Sviðsstjóri ráðgjafarsviðs

      KPMG in Iceland


      Greiningartól sem veitir skýra innsýn í mannaflaþörf í dag og til framtíðar. Mönnunarmódel KPMG tengir saman mannauð, fjárhag og starfsemi og styður gagnadrifnar ákvarðanir um mönnun og rekstur.

      Hvers vegna skiptir þetta máli?

      • Skýrir núverandi stöðu og framtíðarþörf
      • Styður við aðgerðir sem brúa bilið milli framboðs og eftirspurnar
      • Gerir stjórnendum kleift að taka upplýstar, stefnumótandi ákvarðanir

      Lausnin hefur verið innleidd á stórum mörkuðum, meðal annars í heilbrigðisþjónustu erlendis, og styður langtímaplan allt að 10 ár fram í tímann.

      Hvað felst í módelinu

      Samþætt líkan sem tengir:

      • Mannauð
      • Fjárhag
      • Starfsemi
      • Framtíðarþróun og lýðfræðilegar breytingar

      Greiningar eru nákvæmar og ná niður á einstakar starfsstéttir og hæfni.

      Þrjár víddir mönnunar

      Við greiningu á mannaflaþörf og mat á mögulegum viðbragðsaðgerðum er gagnlegt að skipta áætlanagerð mönnunar í þrjár tímavíddir. Markmiðið er að aðgreina betur verkefnin og aðgerðirnar sem ráðist verður í. 

      1. Skammtími
      Stýring daglegrar starfsemi og betri nýting mannafla með stuðningi og tækni

      2. Árlega
      Endurmat á mönnunarmarkmiðum út frá breyttum forsendum

      3. Langtími
      Framtíðarspár um mannaflaþörf byggðar á þróun tækni, þjónustu og mannfjölda

      Virði fyrir viðskiptavini

      • Innsýn í mönnun

        Fá heildstæða mynd af mönnun, rekstri og þróun.

      • Gagnadrifnar ákvarðanir

        Byggja ákvarðanir á traustum gögnum frekar en tilfinningu.

      • Skýr forgangsröðun

        Beina athygli og fjármagni í það sem skapar mest virði.

      • Viðbragðsgeta

        Aðlaga starfsemina hratt að breytingum í umhverfinu.

      Nánari upplýsingar veita

      Hallgrímur Arnarson

      Verkefnastjóri

      KPMG á Íslandi

      Helga Garðarsdóttir

      Verkefnastjóri

      KPMG á Íslandi



      KPMG hefur á að skipta öflugu teymi ráðgjafa í viðskiptagreind og gagnahögun. Verkefnin felast m.a. í uppsetningu á gagnatengingum, mælaborðum og aðstoð við sjálfvirka skýrslugjöf. Þetta nær t.d. yfir rekstrarmælaborð, verkefnamælaborð, mannauðsmælaborð og framleiðslumælaborð auk sértækra greininga af ýmsu tagi, gagnahögunar og eftirliti með flæði og gæðum gagna. 

      Ávinningurinn felst í bættum upplýsingum í rauntíma, tímasparnaði, bættri áætlanagerð, gagnadrifinni ákvarðanatöku og árangri í rekstri svo dæmi séu nefnd.

      Metnaður KPMG felst í því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu í viðskiptagreind þannig að þeir geti hagnýtt gögn á sem skilvirkastan hátt og skapað virði úr upplýsingunum.

      Nánari upplýsingar veita

      Hallgrímur Arnarson

      Verkefnastjóri

      KPMG á Íslandi

      Helga Garðarsdóttir

      Verkefnastjóri

      KPMG á Íslandi

      María Rós Skúladóttir

      Ráðgjafi

      KPMG á Íslandi



      Áhugavert efni

      Mótun skýrrar stefnu er mikilvægt skref í átt til umbreytinga, en er þó einungis fyrsta skrefið. Árangursrík og skilvirk innleiðing skiptir höfuðmáli.

      Framsýnir leiðtogar sveitarfélaga horfa til nýrra tíma þar sem þjónusta við íbúa og fyrirtæki er stafræn og sjálfbærni er sett í forgang.

       Í nýjustu skýrslu okkar leggjum við mat á markaðsálag fyrir seinni helming ársins 2025, byggt á gögnum frá 1. janúar til 30. júní.



      Hafðu samband

      Hafðu samband og sérfræðingar okkar taka samtalið með þér. Við hlustum, greinum aðstæður og aðstoðum þig við að finna lausnir sem henta þínu félagi, hvort sem um ræðir rekstur, þjónustu, fjármál eða stefnumótun.