Í nýjustu skýrslu okkar leggjum við mat á markaðsálag fyrir fyrri helming ársins 2026, byggt á gögnum frá 31. desember til 30. júní.
Á fyrri hluta ársins mátti sjá nokkrar áhugaverðar breytingar:
- Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfsins RIKB 42 0217 hækkaði úr 6,42% í 6,60%
- Stýrivextir hækkuðu úr 7,25% í 7,75%
Áframhaldandi óvissa einkenndi hlutabréfamarkaði á fyrri hluta ársins og OMXIPI-vísitalan lækkaði um 6,7% frá áramótum. Þróunin endurspeglar meðal annars viðvarandi hátt vaxtastig, aukna geópólitíska óvissu og varfærnari væntingar fjárfesta til hagvaxtar og afkomu fyrirtækja. Átök í Miðausturlöndum og áhrif þeirra á alþjóðlega markaði, þar á meðal olíuverð, hafa einnig aukið sveiflur á mörkuðum.
Samkvæmt matsaðferð KPMG hefur markaðsálagið (MRP) haldist óbreytt þar sem hækkun á áætlaðri markaðsávöxtun (Rm) hefur að mestu fylgt hækkun á áhættulausum vöxtum (rf). Niðurstaðan er því sú að áfram sé eðlilegt að beita 5,75% markaðsálagi við mat á eiginfjárkröfu á íslenskum markaði.
Athugið: Mat okkar byggir á upplýsingum sem lágu fyrir 30. júní 2026. Þróun markaða eftir þann tíma er ekki tekin með í útreikningum.