Magnús hóf störf hjá ráðgjafarsviði KPMG árið 2005 og hefur verið hluthafi hjá félaginu frá árinu 2014. Hann hefur sérhæft sig í fjármálaráðgjöf og lagt sérstaka áherslu á flókna verðmatsvinnu í samræmi við alþjóðlega staðla en hann er með alþjóðlega vottun sem verðmatssérfræðingur hjá KPMG og fer fyrir verðmatsteymi KPMG á Íslandi.
Magnús hefur veitt fjöldamörgum fyrirtækjum ráðgjöf við fjármögnun, endurskipulagningu, áætlunargerð og við kaup og sölu sem og ráðgjöf í áhættustýringu og framkvæmd áhættuvarnarreikningsskila.
Magnús hefur haldið fjölda námskeiða um framkvæmd verðmats í samræmi við alþjólega reikningsskilastaðla. Hann hefur einnig kennt verðmat fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík sem og verðlagningu á afleiðum í meistaranámi til endurskoðunar.