Mönnunarmódel sem veitir innsæi og styrkir skilning á mannaflaþörf
Mönnunarmódel KPMG, Strategic Workforce Planner, er gagnadrifið greiningartól sem veitir skýra mynd af mannaflaþörf í dag og til framtíðar. Lausnin tengir saman lykilupplýsingar um mannauð, fjárhag og starfsemi og styður stjórnendur í að taka upplýstar og stefnumótandi ákvarðanir.
Módelið nýtist til að greina bil milli eftirspurnar og framboðs á mannafla og meta áhrif mismunandi aðgerða til skemmri og lengri tíma. Greiningarnar eru ítarlegar og hægt er að brjóta þær niður eftir starfsstéttum og sérhæfingu.
Lausnin hefur verið innleidd meðal annars innan heilbrigðisþjónustunnar í Bretlandi, þar á meðal hjá NHS, þar sem hún styður langtímastefnumótun byggða á raungögnum og spám um lýðfræðilega þróun. Í módelinu er tekið tillit til tæknibreytinga, þróunar í læknisfræði og annarra þátta sem hafa áhrif á mannaflaþörf.
Mönnunarmódel KPMG er nú í notkun hjá mörgum af stærstu heilbrigðisumdæmum í Bretlandi, Írlandi og Ástralíu og hefur hlotið HPMA verðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar og stefnumótunar í heilbrigðisþjónustu.