Með Veltu fjármálaumsjón KPMG hefurðu traustan grunn og þegar þú vilt styrkja reksturinn enn frekar geturðu auðveldlega bætt við þjónustu sem styður við áframhaldandi vöxt.
Þú velur einfaldlega það sem hentar hverju sinni, hvort sem það er reglulegri og ítarlegri yfirferð á rekstrinum með tengiliðnum þínum, aukinn aðgangur að mælaborði og dýpri greiningum eða árleg stöðugreining með samanburði við árangur annarra fyrirtækja í sömu atvinnugrein.
Hjá KPMG geta viðskiptavinir Veltu fjármálaumsjónar fengið aðgang að breiðum hópi sérfræðinga, með mikla þekkingu þvert á svið rekstrar, á vildarkjörum.
Viðskiptavinir geta því á einfaldan hátt sótt í sérfræðiþjónustu innan KPMG þegar þörf er á og byggt ofan á þá þjónustu sem þeir eru þegar með.