Skip to main content


      Flest fyrirtæki sjá tækifærin sem felast í gervigreind. Færri hafa þó náð að umbreyta þeim í raunverulegan ávinning.

       

      Við aðstoðum fyrirtæki að nýta gervigreind, gögn og sjálfvirkni til að bæta ákvarðanatöku, auka skilvirkni og styðja við vöxt. Við vinnum náið með viðskiptavinum að því að móta stefnu, byggja upp trausta gagnainnviði og innleiða lausnir sem skila mælanlegum árangri.

      Markmiðið er ekki að innleiða nýja tækni vegna tækninnar sjálfrar, heldur að skapa raunverulegt virði fyrir fyrirtækið, starfsfólkið og viðskiptavinina.

      Davíð Kr. Halldórsson

      Sérfræðingur í stafrænni umbreytingu og meðeigandi

      KPMG á Íslandi


      Traustur grunnur að árangri með gervigreind

      Árangursrík nýting gervigreindar byggir á sterkum grunni gagna, skýrri stefnu, ábyrgri stjórnun og samræmi við lög og reglur. Þannig skapast forsendur fyrir öruggri og skalanlegri innleiðingu sem skilar raunverulegum viðskiptaávinningi.

      Skalanleg stefna fyrir gervigreind

      Skýr stefna og sterkt rekstrarlíkan eru lykillinn að árangursríkri innleiðingu gervigreindar. Með markvissri nálgun geta fyrirtæki hraðað innleiðingu, aukið framleiðni, stutt við nýsköpun og tryggt að fjárfestingar í gervigreind skili mælanlegum rekstrarlegum og fjárhagslegum ávinningi. Niðurstaðan er meiri skilvirkni, betri ákvarðanataka og sterkari samkeppnisstaða til lengri tíma.

      Við aðstoðum fyrirtæki með að: 

      • móta skýra stefnu fyrir árangursríka nýtingu gervigreindar
      • forgangsraða verkefnum sem skila sem mestum viðskiptaávinningi
      • byggja upp skalanlegt rekstrarlíkan og öfluga stjórnarhætti
      • leggja traustan grunn með sterkri gagnastjórnun
      • tengja fjárfestingar í gervigreind við mælanlegan árangur
      • Efla þekkingu, hæfni og innleiðingu innan fyrirtækisins
      • Tryggja ábyrga notkun og skýra stjórnarhætti

      Gagnainnviðir sem skapa virði

      Við aðstoðum fyrirtæki í að færa gervigreind frá hugmyndastigi yfir í raunverulega notkun. Með réttri blöndu af no-code, low-code og sérsniðnum lausnum þróum við gervigreind sem skapar raunverulegt virði, samþættist rekstrinum og styður við vöxt.

      Við aðstoðum meðal annars við að:

      • Greina og forgangsraða gervigreindarverkefnum með skýran viðskiptaávinning
      • Velja réttu tæknilausnina fyrir hvert verkefni, hvort sem hún byggir á no-code, low-code eða sérþróun
      • Hanna og innleiða gervigreindaraðstoð, spjallmenni og sjálfvirknilausnir
      • Samþætta gervigreind við núverandi kerfi, ferla og vinnulag
      • Efla hæfni starfsfólks til að reka, viðhalda og þróa lausnirnar áfram
      • Skala árangursríkar notkun þvert á fyrirtækið
      Innleiðing og virðissköpun

      Gervigreind skapar mest virði þegar starfsfólk nýtir hana í daglegum störfum. Við hjálpum fyrirtækjum að hraða innleiðingu og umbreyta tækifærum í mælanlegan árangur.

      Við aðstoðum meðal annars við að:

      • Hraða innleiðingu gervigreindar þvert á fyrirtækið
      • Efla þekkingu og færni starfsfólks
      • Virkja stjórnendur 
      • Endurhanna ferla til að auka framleiðni
      • Mæla árangur og virðissköpun
      • Breyta hugmyndum í skalanlegar lausnir
      Örugg og ábyrg notkun á gervigreind

      Traust er forsenda árangurs með gervigreind. Við aðstoðum fyrirtæki við að nýta og skala gervigreind á öruggan og ábyrgan hátt með skýrum stjórnarháttum, samræmi við regluverk og virkri áhættustýringu.

      Við aðstoðum meðal annars við að:

      • Greina áhættu og regluverkskröfur 
      • Tryggja samræmi við AI Act, GDPR og önnur viðeigandi regluverk
      • Móta stjórnarhætti, ábyrgð og verklag
      • Kortleggja og skrá gervigreindarkerfi og notkun þeirra
      • Innleiða stefnur og innra eftirlit fyrir ábyrga notkun
      • Stuðla að gagnsæi, skýranleika og sanngirni í gervigreindarlausnum
      • Styrkja öryggi, vöktun og áhættustýringu
      • Framkvæma óháðar úttektir á gervigreindarkerfum og stjórnarháttum

      Copilot þjálfun fyrir lykilstarfsmenn og stjórnendur


      Að ná fram raunverulegum ávinningi af gervigreind snýst ekki aðeins um tæknina sjálfa heldur hvernig fólk nýtir hana í starfi. KPMG býður upp á sérsniðna þjálfun í Microsoft Copilot fyrir stjórnendateymi, starfsfólk fjármálasviða, mannauðssviða, lögfræðisvið, verkefnastjóra og aðra lykilstarfsmenn sem vilja nýta gervigreind til að auka framleiðni, bæta ákvarðanatöku og skapa meira virði.

      Þjálfunin er sniðin að hlutverki, verkefnum og rekstrarumhverfi hvers viðskiptavinar. Við leggjum áherslu á raunveruleg verkefni sem tengjast daglegu starfi þátttakenda, þannig að þeir geti strax nýtt sér þekkinguna í framkvæmd.

      Þjálfunin snýr meðal annars að:

      • Hvernig Copilot styður við stefnumótun og ákvarðanatöku
      • Greiningu gagna og vinnslu upplýsinga með Copilot
      • Skilvirkari skýrslu- og kynningargerð sem og samskipti
      • Notkun Copilot í Outlook, Teams, Word, Excel og PowerPoint
      • Bestu starfsvenjur, öryggi og ábyrg notkun gervigreindar
      • Hagnýtar leiðir til að auka framleiðni og spara tíma

      Þjálfunin getur verið allt frá stuttum vinnustofum og stjórnendakynningum til ítarlegrar fræðslu og handleiðslu fyrir teymi eða einstök svið. Einnig bjóðum við upp á sérsniðna þjálfun sem tekur mið af markmiðum, þekkingarstigi og þörfum hvers fyrirtækis.

      Með því að sameina sérfræðiþekkingu á rekstri, tækni og breytingastjórnun hjálpum við fyrirtækjum að tryggja að fjárfesting í Copilot skili raunverulegum og mælanlegum árangri.

      Samstarfsaðilar og tæknilausnir

      KPMG og Microsoft

      Samstarf KPMG við Microsoft á alþjóðavettvangi gefur okkur forskot í þekkingu á gervigreindarlausnum eins og Copilot sem þú getur nýtt þér strax til aukinnar skilvirkni.

       

      Salesforce

      Með sérfræðiþekkingu KPMG á rekstri, gögnum og umbreytingum ásamt öflugum lausnum Salesforce geta fyrirtæki aukið skilvirkni, dýpkað innsýn og byggt upp sterkari og varanlegri tengsl við viðskiptavini.

       


      Þekking sem skapar virði

      Gervigreind, AI-fulltrúar og ný kynslóð tæknilausna eru að endurmóta rekstrarumhverfi fyrirtækja hraðar en nokkru sinni fyrr.

      Skýrslan varpar ljósi á hvernig fyrirtæki innleiða gervigreind í lykilferla á borð við fjárhagsáætlanagerð, greiningu, uppgjör og áhættustýringu.

      Global AI Pulse könnun KPMG sýnir að það er ekki lengur nóg að innleiða gervigreind. Raunverulegur árangur ræðst af því hvernig hún er nýtt í rekstri.

      Náðu árangri með gervigreind

      Þú ert með framtíðarsýnina. Hvað ef þú hefðir Copilot til að fylgja henni á eftir með þér?
      ai