Upplýsinga- og netöryggi
Netöryggi er ein af mikilvægustu áskorunum stjórnenda fyrirtækja í dag. Tölvuárásir verða sífellt algengari samhliða því að vistun, meðhöndlun og úrvinnsla upplýsinga á stafrænu formi fer stigvaxandi með hverju ári. Viðbúnaður fyrirtækja gagnvart slíkum árásum hefur aldrei verið jafn mikilvægur.
Samstarf við KPMG á Norðurlöndum
KPMG á Íslandi vinnur náið með KPMG á Norðurlöndunum og býður fjölbreytta þjónustu á sviði netöryggismála. Skrifstofa KPMG í Finnlandi hefur sérhæft sig í netöryggismálum og hefur á að skipa stóru teymi sérfræðinga á sviði netöryggismála sem þekkja vel starfsumhverfi og hvernig eigi að mæta þörfum viðskiptavina.
Við getum aðstoðað með:
- Greiningu á stöðu netöryggismála
- Veikleika- og innbrotsprófanir á netkerfum, vefsíðum og snjall forritum.
- Veikleikagreiningar og veikleikastjórnun.
- Viðbragðsáætlun.
- Stefnumótun netöryggismála og umbætur.
- Persónuvernd og gagnaöryggi.
- Úttekt og öryggisvottanir.