Árangursrík verkefnastjórn og breytingastjórnun

Stjórnendur fyrirtækja eru í auknu mæli að gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar verkefnastjórnunar á sviði upplýsingatæknimála. Fagleg vinnubrögð, reynsla og þekking geta haft lykiláhrif á niðurstöðu verkefna með tímasparnaði og kostnaðarhagræðingu. Sem óháður aðili getum við hjá KPMG veitt aðstoð við verkefnastjórnun sem sérsniðin er að þörfum hvers og eins, hvort sem það er í gegnum allan líftíma verkefnisins eða einstaka þætti þess.

Reynsla og þekking á verkefnastjórnun

Verkefnastjórar KPMG hafa leikið lykilhlutverk í verkefnastjórnun og innleiðingu á stærri upplýsingatækniverkefnum. Við höfum reynslu og þekkingu í því að stýra fjölbreyttum verkefnum, til dæmis:

  • Hefðbundnum upplýsingatækniverkefnum
  • Agile verkefnastjórn á þróunarverkefnum
  • Vöruþróunarverkefnum
  • Sértækum upplýsingatækniverkefnum  

KPMG hefur enn fremur aðstoðað við innleiðingu  og uppbyggingu á verkefnastofum og  veitir þjónustu við óháð eftirlit og úttekt á verkefnum. Þjónusta KPMG hentar vel fyrir aðila sem standa frammi fyrir því að velja ný upplýsingakerfi, þróa eða innleiða ný kerfi eða ef til standa umfangsmiklar breytingar er tengjast upplýsingatækni.