Skip to main content

      Orka, innviðir, áfallaþol og fjárfestingarhæfi ráða næstu bylgju atvinnuuppbyggingar

      Orkuskipti geta verið hluti af atvinnuuppbyggingu á Íslandi. Sá árangur sem uppbyggingin veltur á eru samverkandi þættir, s.s. innviðir, leyfi, fjármagn, skattalegt umhverfi, styrkir og áfallaþol.

      Ný atvinnuuppbygging á Íslandi ræðst ekki lengur af því hvort orka sé til staðar. Umhverfi samtímans er að flækjast og lykilspurningarnar snúa að því hvernig orku er raunhæft að afhenda, hvaða innviði þarf til uppbyggingar, hvaða leyfi og samþykki þarf að hafa, hvernig verkefni eru fjármögnuð, hvaða skattalega hvata eða styrki má nýta og hversu vel kerfið í heild sinni þolir áföll.

      Ef verkefni tengt orku og innviðum eru ekki samstillt geta verkefni orðið óraunhæf, tafir aukist og fjármagn leitað annað. Ef verkefni eru samstillt og vel skipulögð eru orku- og innviðatækifæri hins vegar grundvöllur raunverulegrar verðmætasköpunar og snýr að afhendingaröryggi, þjóðaröryggi og fjárfestingarhæfi verkefna.

      KPMG aðstoðar fyrirtæki, fjárfesta og opinbera aðila við að móta orku- og innviðatengd uppbyggingarverkefni sem eru stefnumótandi, framkvæmanleg, fjárfestingarhæf og áfallaþolin. Við samþættum leyfi, styrki, ívilnanir, áhættuþol og framkvæmd þannig að tækifæri verði að raunhæfum verkefnum. 



      Þjónustan sem við veitum

      bolt

      Orka og afhendingargeta

      Mat á orkuþörf, afhendingargetu, stjórnotendum, PPA, sveigjanleika, kerfisvirði og verðmæti næstu MW.

      receipt_long

      Skattar, ívilnanir og styrkir

      Skattaleg uppbygging, styrkja- og ívilnanakortlagning, fjármögnunarskimun, umsóknaraðstoð, græn fjármögnun, ríkisaðstoðarmat og skýrslugjöf.

      foundation

      Innviðir og framkvæmdarhæfi

      Greining á flöskuhálsum, lóðum, höfnum, vegum, veitum, flutningskerfi, leyfum og framkvæmdagetu.

      gpp_good

      Áfallaþol og tvínota innviðir (e. dual purpose)

      Afhendingaröryggi, krítískir innviðir, varaafl, eldsneyti, flutningsleiðir, fjarskipti og annar viðbúnaður.

      ads_click

      Stefna og forgangsröðun

      Náið samstarf KPMG á Íslandi og alþjóðavísu skapar okkur sérstöðu þegar kemur að hvers kyns ráðgjöf um lögfræðilegar eða skattalegar hliðar viðskipta.

      settings

      Stjórnarhættir, leyfi og framkvæmdir

      Samhæfing eigenda, stjórnvalda, fjárfesta og rekstraraðila frá stefnu til fjárfestingarákvörðunar og framkvæmda.

      show_chart

      Ráðgjöf tengd fjárfestingum

      Viðskiptagreining, fjárfestingarhæfi, áhættudreifing, fjármögnunarleiðir, eigendastrúktúr, samstarfslíkön og áreiðanleikakönnun.


      Hvernig breidd KPMG kemur inn

      Verkefni á sviði orku og innviða kalla oft á þverfaglega nálgun. KPMG nýtir breiða þekkingu sína á sviði stefnumótunar, mati á fjárfestingum, sköttum, styrkjum, regluverki, áhættu, sjálfbærni, reikningsskilum og endurskoðun.

      groups_2

      Ráðgjöf

      Stefnumótun, viðskiptagreining, fjármögnun, græn fjármögnun, loftslagsáhættumat, stjórnarhættir og rekstur.

      gavel

      Lögfræði og skattamál

      Skattaleg uppbygging, hvatar, ívilnanir, styrkir og alþjóðleg skattamál, leyfi, samningar, opinber stuðningur, regluverk og ríkisaðstoðarmál, meðferð styrkja, eigna, skuldbindinga og fjármögnunar.

      fact_check

      Reikningsskil og endurskoðun

      Staðfesting gagna og skilyrða og skýrslugjöf þar sem við á.


      Dæmi um verkefni

      • Staðarhæfi fyrir iðngarða og stórnotendur

        Mat á því hvort tiltekin staðsetning hafi orku, innviði, skipulag, leyfi, veitur, flutningsleiðir og fjárfestingarforsendur til að taka við uppbyggingu.

      • Forsendugreining

        Kortlagning á þeim innviðum sem geta tafið eða stöðvað verkefni: raforkuflutningur, dreifikerfi, hafnir, vegir, vatn, fráveita, fjarskipti og leyfisferli.

      • Fjárfestingarhæfi og fjármögnun

        Greining á því hvort verkefni standist fjárfestingarskoðun, hvaða forsendur vantar og hvaða fjármögnunarleiðir koma til greina.

      • Skimun styrkja, ívilnana og skattalegrar uppbyggingar

        Kortlagning á skattalegri uppbyggingu, ívilnunum, styrkjum, grænni fjármögnun og umsóknartækifærum sem geta bætt framkvæmd verkefnis.

      • Krítískir innviðir

        Mat á áfallaþoli innviða, varaafli, eldsneyti, fjarskiptum, flutningsleiðum og tvínota gildi innviða.

      • Stjórnarhættir og aðgerðaáætlanir

        Ákvörðunar- og framkvæmdarammi sem skýrir ábyrgð, ferla, leyfi, eigendahlutverk, fjármögnun og næstu skref.


      Innsýn

      Orka þarf að komast til notenda á tilteknum svæðum, um flutnings- og dreifikerfi sem ráða við álagið, á þeim tíma sem hennar er þörf.

      Insights from 420 Investors in Energy & Natural Resources

      Hear about the 10 emerging trends in infrastructure and transport we believe will emerge in 2025, our predictions for the year ahead and a new view on infrastructure reset.

      Seigla og samkeppnishæfni Íslands

      Overview of the CER Directive and what EU organisations must know for compliance

      Alþjóðleg skýrsla sem sýnir viðhorf 1400 stjórnenda fyrirtækja sem vinna með virkum hætti að fjárfestingu í orkuskiptunum

      How Ireland can strengthen Europe’s resilience

      Helstu viðfangsefni fyrirtækja í orku- og innviðageiranum

      1. Afhendingargeta

       

      • Verðmæti og afhendingargeta auðlinda
      • Hvaða atvinnuuppbygging skilar mestu virði
      • Hafnir, vegir, veitur og raforkukerfi: raunverulegir flöskuhálsar atvinnuuppbyggingar 

      2. Innviðir sem ráða uppbyggingu

       
       
      • Staðarhæfi fyrir iðngarða
      • Frá lóð að fjárfestingarhæfu verkefni
      • Innviðir sem gera því kleift að framkvæma aðgerðir 

      3. Fjárfestingarhæfi, skattar og stuðningsumhverfi

       

      • Styrkir og ívilnanir í orku- og innviðaverkefnum
      • Hvenær verkefni verður hæft til grænnar fjármögnunar
      • Skattaleg uppbygging getur ráðið arðsemi stórfjárfestinga 

      4. Áfallaþol, öryggi og tvínota innviðir

       

      • Áfallaþol er ný vídd í atvinnuuppbyggingu Íslands
      • Tvínota innviðir: Þegar hafnir, orka og flutningsleiðir þjóna bæði atvinnu og viðbúnaði
      • Seigla íslenska orku- og innviðakerfisins
      • Frá kröfum NATO til íslenskrar forgangsröðunar innviða

      Hafðu samband

      Dr. Hafþór Ægir Sigurjónsson

      Forstöðumaður rekstrarráðgjafar og hluthafi

      KPMG á Íslandi

      Magnús Erlendsson

      Sviðsstjóri ráðgjafarsviðs og hluthafi

      KPMG á Íslandi