Sem leiðandi aðili á heimsvísu í endurskoðun og staðfestingarþjónustu bjóðum við upp á sérfræðiþekkingu á fjölbreyttum sviðum, allt frá regluvörslu til sjálfbærniskýrslugerðar. Við leggjum áherslu á að tryggja nákvæmni í bæði fjárhagslegum og ófjárhagslegum gögnum með óháðum úttektum sem gerir fyrirtækjum kleift að taka upplýstar ákvarðanir með auknu öryggi.
Endurskoðun
Við skuldbindum okkur til að veita óháða endurskoðun sem eykur traust á fjárhagslegri upplýsingagjöf. Með því að starfa af heilindum, beita faglegri efasemd og fylgja ströngum siðareglum tryggjum við vandaða endurskoðun. Alheimsvettvangurinn okkar, KPMG Clara, nýtir háþróaða gagnagreiningartækni til að takast á við lykilatriði og skila skilvirkri endurskoðun sem veitir dýpri innsýn í rekstur fyrirtækja.
Staðfestingarþjónusta
Fyrir utan hefðbundna endurskoðun styður staðfestingarþjónusta okkar við lykilmarkmið fyrirtækja. Við aðstoðum við að sannreyna réttmæti sjálfbærniskýrslna (ESG) og innri eftirlitskerfa, til að tryggja að bæði fjárhagslegar og ófjárhagslegar upplýsingar uppfylli vaxandi kröfur hagsmunaaðila og eftirlitsaðila – þar á meðal nýjar kröfur um sjálfbærniskýrslugerð samkvæmt CSRD. Markmið okkar er að byggja upp traust á upplýsingagjöf og stjórnarháttum fyrirtækisins.
Þjónustan sem við veitum
Þegar fyrirtækið þitt gengur í gegnum breytingar og atvinnugreinin þróast, er stöðug þörf á að tryggja að meðferð reikningsskila sé rétt og að ársreikningar séu í samræmi við gildandi reglur.
Ýmis atvik geta haft áhrif á reikningsskil og uppgjörsferla, til dæmis:
- Viðskiptaleg atvik eins og nýir samningar, kaup eða sala á dótturfélögum og endurskipulag innan samstæðu.
- Nýir reikningsskilastaðlar sem hafa áhrif á efnahagsreikning, afkomu og reikningsskilastefnu.
- Uppfærðar upplýsingaskyldur sem hafa áhrif á samræmi ársreikninga.
- Breytingar á uppgjörsramma sem þarf að endurspegla í reikningsskilum og rekstri í heild.
- Stafræn þróun í reikningsskilum og skýrslugerð sem skapar tækifæri til aukinnar skilvirkni.
Við veitum óháða endurskoðun sem eykur traust á fjárhagsupplýsingum með því að auka skilning á rekstri fyrirtækisins, ytra umhverfi og áhættu sem tengist tiltekinni atvinnugrein. Hlutverk okkar er að veita fjárfestum og öðrum hagsmunaaðilum þær upplýsingar sem þeir þurfa til að taka vel ígrundaðar ákvarðanir.
Heiðarleiki er kjarninn í endurskoðunarferlinu okkar, þar sem við skoðum hvernig stjórnarhættir og innra eftirlit virkar. Við fjárfestum stöðugt í gagnatækni og greiningartólum og með KPMG Clara, sem er alþjóðlegur vettvangur okkar í endurskoðun, getum við einbeitt okkur að mikilvægustu atriðunum sem gerir okkur kleift að skila endurskoðun af hæsta gæðaflokki.
Til að mæta auknum kröfum um gagnsæi og áreiðanleika í skýrslugerð er mikilvægt að viðhalda öflugu innra eftirliti með fjárhagslegri skýrslugerð (ICFR) og sjálfbærniskýrslugerð (ICSR).
Mörg fyrirtæki fela þjónustuaðilum að sinna hluta af starfsemi sinni, svo sem launavinnslu, upplýsingatækni, innkaupum og stoðþjónustu. Árangursrík leið fyrir þjónustuaðila til að sýna fram á hvernig þeir stýra innra eftirliti er með útgáfu staðfestingarskýrslu frá þriðja aðila.
Við aðstoðum við endurskoðun og útgáfu staðfestingarskýrslna í samræmi við ISAE 3402/SOC 1, ISAE 3000, SOC 2, SOC 3 og ISO 27001. KPMG býður einnig undirbúningsmat til að meta hvort fyrirtækið sé tilbúið fyrir slíka endurskoðun, hjálpar til við að velja viðeigandi staðfestingarstig miðað við þarfir og veitir leiðbeiningar um umfang og takmarkanir.
Við berum ábyrgð á tæknilegum þáttum allra endurskoðunar- og staðfestingarverkefna. Helstu verkefni okkar fela í sér að meta fjárhagslega áhættu sem upplýsingakerfi viðskiptavina kunna að vera berskjölduð fyrir, greina gögn viðskiptavina og styðja teymið við innleiðingu tæknilausna sem tryggja skilvirka og örugga framkvæmd verkefna. Auk þess veitir teymið okkar sérhæfða tæknitryggingarþjónustu sem eykur öryggi viðskiptavina með því að takast á við áhættu sem stafar af notkun upplýsingatækni.
Endurskoðun upplýsingakerfa (IT Audit)
Við tryggjum að upplýsingakerfi og eftirlitsferlar viðskiptavina uppfylli lagalegar og reglubundnar kröfur, sem stuðlar að öruggum og skilvirkum rekstri. Fyrir KPMG er samþætting upplýsingatæknieftirlits í bæði ytri og innri endurskoðun lykilatriði til að byggja upp traust og styrkja stöðu okkar sem heildarlausnaraðila í áhættustýringu.
Gögn og greining (Data and Analytics)
Með gagnadrifinni nálgun greinum við áhættusvæði og tryggjum bæði gæði og skilvirkni í framkvæmd verkefna. Við vinnum náið með viðskiptavinum til að nýta gögn þeirra við gerð vandaðra skýrslna fyrir endurskoðunar- og tryggingarverkefni. Sérfræðingar okkar í gagnagreiningu tryggja aðgengi að öllum viðeigandi og tiltækum gögnum úr upplýsingakerfum viðskiptavina og beita sjálfvirkni og gervigreindartólum til að greina mögulegar skekkjur sem geta haft áhrif á birtingu fjárhagslegra og ófjárhagslegra upplýsinga, þar á meðal sjálfbærni (ESG).
Tæknitrygging (Tech Assurance)
Við aðstoðum viðskiptavini við að vernda starfsemi sína og uppfylla alþjóðlega staðla, allt frá netöryggismati og ISO 27001 samræmi til verkefnatryggingar og ISAE skýrslugerðar. Þessi þjónusta veitir aukið öryggi og traust og styrkir stöðu KPMG sem áreiðanlegs samstarfsaðila í stjórnarháttum og netöryggi. Með þessu skapast einnig tækifæri til að styðja við víðtækari þarfir viðskiptavina í áhættustýringu.
Með innleiðingu tilskipunar ESB um sjálfbærniskýrslugerð (CSRD) og tilheyrandi evrópskra skýrslustaðla (ESRS) eru kröfur um skylduskýrslugerð í sjálfbærni að verða sambærilegar við fjárhagslega skýrslugerð. Markmiðið er að setja sjálfbærniupplýsingar á jafn mikilvægan stall og fjárhagsupplýsingar. Staðfesting sjálfbærniskýrslna er nú orðin nauðsynleg til að auka gagnsæi og traust.
Endurskoðun okkar stuðlar að auknu trausti hagsmunaaðila á upplýsingum um sjálfbærni og gerir þær gagnlegri við ákvarðanatöku.