Hafþór hefur viðamikla reynslu á sviði sjálfbærni og greininga umhverfisáhrifa. Hann leiddi tæknilega hluta greiningarvinnu fyrstu ESG skýrslunnar á Íslandi, fyrsta græna skuldabréfsins, fyrstu áhrifaskýrslu grænna fjármála. Hafþór kenndi lífsferilsgreiningar í fimm ár hjá Háskóla Íslands ásamt því að kenna nokkra áfanga í DTU á sviði sjálfbærrar orku. Nýlega hefur hann leitt tæknilega greiningarvinnu í verkefni fyrir Eidsiva og Gelato með KPMG í Noregi.