KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Sérfræðingur í tæknilegum innviðum og skýjavegferð (system/cloud architect)

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að hjálpa viðskiptavinum okkar í innleiðingu skýjalausna og hagnýtingu Microsoft lausna. Ef að þú ert að leita að spennandi atvinnutækifæri sem reynir á bæði tæknilega sérfræðiþekkingu þína og samskiptahæfni, þá viljum við heyra frá þér!

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Greiningarvinna á tæknilegum innviðum, stjórnkerfi og uppbyggingu öryggismála viðskiptavina.
  • Vinna með þverfaglegu þróunarteymi í hönnun á tækniinnviðum.
  • Greining á Microsoft lausnamengi fyrir viðskiptavini.

Hæfniskröfur:

  • Brennandi áhugi á Microsoft 365 og Azure skýjalausnum.
  • Rík öryggisvitund og áhugi á upplýsingatækniöryggi.
  • Góð þekking á rekstri upplýsingatækni- og skýjaumhverfa.
  • Agile hugmyndafræði, s.s. SCRUM, Kanban.
  • Háskólapróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
  • Geta til að koma upplýsingum og gögnum á framfæri á skýran hátt og skilvirkt samstarf við viðskiptavini og samstarfsfólk.
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum hjá KPMG á Íslandi og erlendis.
  • Möguleikar á að þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2023.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir á hsteinthorsdottir@kpmg.is eða Hjálmur Hjálmsson á hhjalmsson@kpmg.is