KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Sérfræðingur í stafrænum verkefnum (digital consultant)
Við leitum að öflugum einstaklingum sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á stafrænum umbreytingarverkefnum og stafvæðingu ferla sem munu hjálpa viðskiptavinum okkar í að ná framúrskarandi árangri.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
- Framkvæma þarfagreiningar á nýjum upplýsingakerfum.
- Aðstoða við stafræna stefnumótun, innleiða stefnumarkandi aðgerðir og vinna með stjórnendum í stafrænni vegferð.
- Verkefnastjórnun á stafrænum umbreytingarverkefnum og innleiðingu á stafrænum lausnum hjá viðskiptavinum.
- Leiða ferlagreiningar og ávinningsmat með stjórnendum.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af verkefnastjórnun og / eða stafrænum umbreytingarverkefnum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
- Góð skipulags- og samskiptahæfni.
- Agile hugmyndafræði, s.s. SCRUM, Kanban.
Að vinna hjá KPMG
Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
- Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.