KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Við leitum nú að öflugum einstaklingi í fullt starf sem sérfræðingur í launavinnslu með aðkomu að bókhaldsverkefnum samhliða fyrir viðskiptavini KPMG.

Hæfniskröfur

  • Góð reynsla af launavinnslu er nauðsynleg, kostur ef viðkomandi hefur einnig reynslu af bókhaldi.
  • Reynsla af notkun H3 og Navision er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Jákvæðni í samstarfi, lausnamiðað viðhorf og rík þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út hér á heimasíðu KPMG (sjá "Sækja um" hér að neðan). 

Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.