KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Sérfræðingur í greiningum á fyrirtækjum
Við leitum að öflugum einstaklingi til þess að vinna við fjárhagslegar áreiðanleikakannanir og aðrar greiningar í ráðgjöf vegna kaupa og sölu fyrirtækja. Viðkomandi mun tilheyra ráðgjafarsviði KPMG og fá tækifæri til að vinna í fjölbreyttum verkefnum í alþjóðlegu umhverfi.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
- Vinna við fjárhagslegar áreiðanleikakannanir sem felur í sér einna helst fjárhagslegar greiningar til að styðja við verðmatsforsendur.
- Gagnavinnslur úr fjárhagskerfum fyrirtækja.
- Almenn greiningarvinna í tengslum við ráðgjöf vegna kaupa og sölu fyrirtækja.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af reikningsskilum og fjárhagsgreiningum.
- Reynsla í framsetningu á fjárhagsgreiningum og skýrslugerð.
- Þekking á verðmati fyrirtækja er kostur.
- Þekking á gagnagrunnstengingum og greiningar á stórum gagnasöfnum er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun og/eða í fjármálum fyrirtækja.
- Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
Að vinna hjá KPMG
Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
- Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hér á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.