KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Sérfræðingur í endurskoðun tölvukerfa

Við leitum að öflugum einstaklingum sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á úttektum á tölvukerfum í tengslum við endurskoðun.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Framkvæmd úttekta á sviði upplýsingaöryggis.
  • Úrvinnsla, greining og framsetning gagna.
  • Ráðgjöf vegna net- og upplýsingaöryggis.
  • Utanumhald og skipulag verkefna.

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði og/eða viðskiptafræði er kostur.
  • Þekking á ISO 27001 og úttektum er kostur en ekki skilyrði.
  • Reynsla af úttektum á sviði net- og upplýsingaöryggis er kostur.
  • Þekking á helstu viðskiptakerfum og uppbyggingu upplýsingakerfa.
  • CISA, CRISC, CISM gráða eða sambærileg þekking er kostur.
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2023

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér að neðan). Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.