Sameinuð og öflug lausn fyrir ábendingar um lögbrot og ámælisverða háttsemi
Vitinn er sameinuð lausn KPMG á Íslandi og Hagvangs fyrir örugga og faglega meðhöndlun á ábendingum um lögbrot og ámælisverða háttsemi. Lausnin byggir á styrkleikum Vitans frá KPMG og Siðferðisgáttar Hagvangs og uppfyllir allar kröfur laga um vernd uppljóstrara.
Öruggt ferli fyrir slíkar tilkynningar getur dregið úr líkum á misferli, sparað fjármagn og minnkað líkur á neikvæðri umfjöllun sem skaðað getur ímynd fyrirtækisins. Mikilvægt er að starfsfólk þori að láta vita af misferli innan síns fyrirtækis eða stofnunar og geti gert það með einföldum og öruggum hætti.