Eva leiðir þjónustu félagsins á sviði innri endurskoðunar og hlítingarráðgjöf ásamt því að koma að áhætturáðgjöf. Hún hefur starfað á ráðgjafarsviði KPMG síðan 2015 og unnið að margvíslegum verkefnum tengdum innri- og ytri endurskoðun, upplýsingaöryggi, úttektum á hlítingu við lög og reglur ásamt ráðgjöf.
Áður starfaði Eva á viðskiptaskrifstofu sendiráðs Bretlands á Íslandi við viðskipta- og fjárfestingaráðgjöf til breskra fyrirtækja. Á árunum 2008-2012 starfaði Eva hjá utanríkisráðuneytinu, lengst af á viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins.