Microsoft 365 Copilot er hannað til að auka framleiðni og styðja við skilvirkara vinnulag starfsfólks. Copilot er innbyggt í Microsoft 365 svítuna og er aðgengilegt beint í þeim forritum sem starfsfólk notar daglega, svo sem Word, Excel, PowerPoint, Outlook og Teams og nýtist beint í daglegu starfi.
Copilot tekur við skipunum notenda innan hvers forrits, til dæmis við að semja tölvupósta, vinna með gögn eða búa til kynningar. Lausnin leggur fram tillögur, dregur saman upplýsingar og sjálfvirknivæðir endurtekin verkefni sem sparar tíma og eykur gæði vinnu.
Auk þess er hægt að búa til snjalla aðstoðarmenn (agents) sem sinna afmörkuðum verkefnum eða ferlum. Slíkir aðstoðarmenn eru stilltir til að vinna með tiltekin gögn, verklag eða reglur og geta til dæmis svarað endurteknum fyrirspurnum, stutt við ákveðin teymi eða sjálfvirknivætt sérhæfð vinnuferli. Þannig nýtist gervigreindin markvisst þar sem hún skapar mest virði.
Lausnin starfar innan öruggs umhverfis Microsoft 365 og tryggir að gögn séu vernduð í samræmi við ströngar kröfur um öryggi, samræmi og persónuvernd.
Copilot hjálpar starfsfólki að verja minni tíma í endurtekin verkefni og meiri tíma í það sem skapar raunverulegt virði.