Hjálmur hóf störf hjá KPMG í ágúst 2020 og starfar á ráðgjafarsviði.
Hjálmur starfaði áður hjá Þekkingu þar sem hann gegndi lengst af stöðu vörustjóra Microsoft lausna og sem stjórnendaráðgjafi hjá Capacent.
Hjálmur er ötull talsmaður breyttra starfshátta og hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða undanfarin 7 ár. Hann er annar tveggja kennara sem fyrstir fengu APD vottun frá Apple og fyrsti Íslendingurinn sem fékk MIE vottun frá Microsoft.
Undanfarin misseri hefur Hjálmur aðstoðað fjölda fyrirtækja í innleiðingu á Office 365 skrifstofuhugbúnaði og m.a. aðstoðað Fjármála- og efnahagsráðuneytið að skipuleggja slíka innleiðingu fyrir allar A-hluta stofnanir ríkisins.
Hjálmur hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum verkefnum í upplýsingatækni.
- Stýrði fyrstu spjaldtölvuinnleiðingunni í grunnskóla á Íslandi
- Skrifaði innleiðingarhandbók fyrir Fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna Office 365 innleiðingar ríkisins.
- Undirbúningur fyrir stafræna stefnumótun hjá ráðuneyti
- Tekið þátt í fjölda stefnumótunarverkefnum fyrir opinbera aðila og fyrirtæki