Velta fjármálaumsjón KPMG

Yfirsýn, ráðgjöf og stuðningur

Velta fjármálaumsjón er traustur félagi stjórnenda í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Vaxtastig, launakostnaður, verðbólga og samkeppni móta daglegar ákvarðanir stjórnenda, á meðan tæknibreytingar og auknar kröfur kalla á skýra sýn og góða yfirsýn.  Að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr.

Velta veitir skýra yfirsýn yfir reksturinn, markvissa ráðgjöf og faglegan stuðning sem styður fyrirtæki til áframhaldandi vaxtar og árangurs.

Leyfðu okkur að aðstoða þig við fjármálin svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.   Með Veltu ertu með fjármálin á hreinu – og meira svigrúm til að einbeita þér að því sem þú gerir best.


Aðgangur að rekstrarmælaborði

Með Veltu færðu aðgang að rekstrarmælaborði sem veitir skýra yfirsýn yfir fjárhag fyrirtækisins. Þar eru lykiltölur settar fram á einfaldan og sjónrænan hátt sem gerir stjórnendum kleift að fylgjast með rekstrinum, greina þróun og bregðast tímanlega við. 

Auk grunnyfirsýnar veitir rekstrarmælaborðið ítarlega greiningu á lykiltölum eins og tekjum, kostnaði, framlegð og þróun rekstrarþátta yfir tíma. Þar sérðu samstundis hvaðan frávik koma, hvaða þættir skila mestum árangri og hvar tækifæri eða áhætta liggur.

Mælaborðið sýnir einnig samanburð við áætlanir og fyrri tímabil á myndrænan og auðskiljanlegan hátt, sem hjálpar við að skerpa fókus, styrkja ákvarðanatöku og styðja við áætlanagerð.


Svona virkar grunnþjónustan

Velta fjármálaumsjón KPMG

Hægt er að nýta einungis grunnþjónustu Veltu gegn föstu mánaðargjaldi með aðgangi að einum tengilið KPMG eða bæta við fleiri þjónustuþáttum sem henta þínu fyrirtæki hverju sinni.

Grunnþjónusta Veltu fjármálaumsjónar KPMG

Hvað felst í frekari þjónustu?

Þú getur valið um að bæta fleiri þjónustuþáttum sem styrkja enn frekar við reksturinn og grunnþjónustuna – þegar þér hentar. Þar getur þú valið þjónustu sem þú telur að gefi þér enn dýpri yfirsýn og aukinn stuðning, t.a.m. mánaðarlega fundi með þínum tengilið ef þörf er á tíðari og dýpri yfirferð á lykiltölum rekstrar og/eða betri aðgang að lifandi mælaborðum með fleiri greiningar valmöguleikum.

Einnig er í boði að velja árlega stöðugreiningu rekstrar með samanburði við árangur atvinnugreinarinnar í heild, yfirferð og stöðutöku á VSK-málum, stöðumat á lykilferlum og greiningar á tækifærum til sjálfvirknivæðingar.

Þú velur einfaldlega það sem hentar þegar þú vilt meiri nákvæmni, betri gögn og sterkari grunn fyrir reksturinn til að ná hámarksárangri.

Viðbótarþjónusta Veltu fjármálaumsjónar KPMG