Vitinn - öflug lausn fyrir ábendingar um lögbrot og ámælisverða háttsemi

KPMG á Íslandi og Hagvangur hafa ákveðið að hefja samstarf sem felur í sér að Siðferðisgáttin frá Hagvangi mun hér eftir sameinast Vitanum frá KPMG. Með þessu samstarfi verður til ein öflugasta lausn landsins fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja tryggja örugga og faglega meðhöndlun á ábendingum um lögbrot og ámælisverða háttsemi, í samræmi við lög um vernd uppljóstrara.

Siðferðisgáttin hefur frá stofnun verið vettvangur þar sem starfsfólk getur komið ábendingu á framfæri til óháðs þriðja aðila ef það verður fyrir óæskilegri háttsemi eða upplifir vanlíðan í tengslum við störf sín. Vitinn er stafræn lausn frá KPMG sem styður fyrirtæki og stofnanir við að uppfylla lagalegar skyldur um vernd uppljóstrara og tryggir öruggt ferli fyrir tilkynningar um brot á lögum eða aðra ámælisverða starfsemi vinnuveitanda þeirra.

Með sameiningu þessara tveggja lausna geta viðskiptavinir Siðferðisgáttarinnar nú nýtt sér Vitann frá KPMG – öruggan, stafrænan og notendavænan vettvang sem stenst allar kröfur um persónuvernd og faglega úrvinnslu. Sérfræðingar KPMG sinna móttöku, greiningu og flokkun tilkynninga eftir eðli þeirra hverju sinni.  Viðskiptavinur fær svo skýrslu um þær tilkynningar sem berast og getur því brugðist við þeim og eftir atvikum fengið aðstoð frá sérfræðingum KPMG við úrlausn þeirra.  Viðskiptavinir Vitans munu  einnig hafa aðgang að sérfæðingum Hagvangs við úrlausn mála sem tengjast mannauðsmálum.

Öll fyrirtæki eða stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri þurfa að uppfylla skyldur sem lagðar eru á þau með lögum um vernd uppljóstrara.

Við erum afar stolt af því að geta boðið öfluga lausn sem sameinar stafræna og notendavæna eiginleika Vitans og mannauðstengda nálgun Siðferðisgáttarinnar. Þetta samstarf mun styrkja stoðir góðrar vinnustaðamenningar og tryggja að fyrirtæki og stofnanir geti brugðist hratt og rétt við ábendingum um möguleg lögbrot og óæskilega háttsemi.

Geirlaug Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Hagva

Vitinn er öflugur vettvangur fyrir öruggar tilkynningar og faglega meðhöndlun mála. Með samstarfinu við Hagvang bætum við enn frekar við þjónustuna og tryggjum að viðskiptavinir fái aðgang að hæfustu sérfræðingum landsins.

Eva M. Kristjánsdóttir, partner hjá KPMG