Rut hefur lagt áherslu á starfsemi og stjórnarhætti fjármálafyrirtækja og skráðra félaga í störfum sínum. Hefur hún bæði starfað við opinbert eftirlit með fjármálafyrirtækjum og verðbréfamarkaðnum, sem og innra eftirlit hjá banka og útgefanda skráðra fjármálagerninga.
Auk eftirlitsstarfa hefur Rut mikla reynslu af ráðgjöf til fjármálafyrirtækja og útgefanda og haldið fjölda námskeiða fyrir starfsfólk, stjórnendur og stjórnarmenn slíka fyrirtækja sem og sinnt kennslu fyrir nemendur á háskólastigi á sviði verðbréfamarkaðsréttar og Evrópuréttar. Hefur hún leitt innleiðingar á nýrri löggjöf á sviði fjármálafyrirtækja, verðbréfamarkaðar og peningaþvættisvarna.
Rut hefur unnið í ráðgjafar- og úttektarverkefnum hjá KPMG með áherslu á fjármálamarkað.