Sjálfbær fjármögnun
Sjálfbær fjármögnun í sjávarútvegi snýst um að horfa fram á veginn og fjármagna verkefni sem stuðla að ábyrgri nýtingu hafsins, minni umhverfisáhrifum og auknum stöðugleika í rekstri. Í dag standa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki frammi fyrir aukinni alþjóðlegri eftirspurn eftir rekstrarhæfni, gagnsæi og sjálfbærni, bæði frá kaupendum, fjárfestum og regluverki. Að fjármagna verkefni út frá umhverfislegum og samfélagslegum viðmiðum er því ekki aðeins jákvætt fyrir hafið og samfélagið heldur lykilforsenda fyrir áframhaldandi samkeppnishæfni og markaðsaðgang. KPMG hefur áratugareynslu í samstarfi við fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og sameinar sérþekkingu á reikningsskilum, endurskoðun, ráðgjöf, skattamálum og lögfræði til að styðja við ábyrg fjármál, sjálfbærni og vöxt.
Áhersla á nýsköpun
KPMG tók þátt í útgáfu fyrstu bláu og grænu skuldabréfanna haustið 2021, tímamót sem staðfesta vaxandi vilja til að fjármagna verkefni sem vinna gegn ofveiði, draga úr kolefnisspori, efla orkunýtni og styðja við hringrásarhagkerfi sjávarútvegsins.
Við höldum áfram að vinna með fyrirtækjum, fjárfestum og öðrum hagaðilum að lausnum sem gera sjávarútvegi kleift að takast á við stórar sjálfbærniáskoranir framtíðarinnar.