KPMG birtir upplýsingar um losun í umfangi 3, sem nær til óbeinnar losunar í virðiskeðju félagsins. Mest losun í þessum flokki stafar frá aðkeyptri vöru og þjónustu, sem nemur 59% af heildarlosun í umfangi 3. Viðskiptaferðir mynda 21,2% og ferðir starfsfólks til og frá vinnu 18,4%.
Samdráttur í losun milli ára má helst rekja til minni losunar vegna innkaupa á vörum fyrir mötuneyti, ásamt fækkun stöðugilda. Fækkunin hefur mest áhrif á losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu, auk losunar sem tengist aðkeyptum vörum á árinu.
Á síðustu rekstrarárum höfum við hvatt starfsfólk til að nýta vistvænar samgöngur og fækka óþarfa ferðum. Samdráttur í losun vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu milli 2024 og 2025 var ríflega 27%. Það má einkum rekja til fækkunar starfsfólks milli ára. Aukning í losun vegna viðskiptaferða var um 22% milli ára, sem tekur til losun vegna flugferða, gistingu erlendis og innanlands, ásamt eldsneytisnotkunar vegna viðskiptaferða.
Losun fyrir heitavatns- og rafmagnsnotkun hækkaði talsvert á milli ára, úr 3,3t CO2í árið 2023 í 15,4t CO2í árið 2024 en lækkar í ár í 12,0t CO2í. Aukning frá árinu 2023 er einkum vegna breyttrar aðferðafræði og vegna nýs reikningsstuðuls frá Umhverfisstofnun, auk þess sem umfang frumgagna er mun meira en frá árinu áður. Þá hefur 16% aukning í stöðugildum starfsfólks milli 2023 og 2024 einnig áhrif. Hins vegar skýrist lækkunin milli áranna 2024 og 2025 af 27% samdrætti í stöðugildum starfsfólks.