Skip to main content

      Nákvæm og traust skýrslugjöf um losun verður sífellt mikilvægari fyrir samkeppnisstöðu fyrirtækja, meðal annars í útboðum, ekki síst hjá hinu opinbera. GreenSenze er einföld lausn fyrir fyrirtæki til að greina og fylgjast með kolefnisspori í innkaupum. Markviss greining á kolefnisspori er forsenda þess að geta mótað aðgerðir sem draga úr kolefnislosun og stuðla að sjálfbærni í rekstri.

      Af hverju GreenSenze?

      Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærniskýrslugjöf fyrirtækja CSRD munu nær öll fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa að birta upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrir flesta mun loftslagsstaðallinn ESRS E1 teljast efnislegur.

      ESRS E1 er evrópski skýrslustaðallinn sem fjallar um loftslagsmál og krefst upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda, loftslagsáhrif, áhættu og tækifæri tengd loftslagsbreytingum, auk markmiða og aðgerða fyrirtækja í þessum efnum.

      Tilskipunin eykur kröfur um gagnsæ, áreiðanleg og staðfestanleg gögn um losun, sérstaklega þar sem skýrslugjöf um losun í umfangi 3 er oft flókin og krefst nákvæmrar gagnaöflunar um óbeina losun í virðiskeðjunni.

      GreenSenze býður sjálfvirka lausn sem styður við reglufylgni, einfaldar losunarbókhald og skýrslugjöf og eykur bæði gagnsæi og samkeppnishæfni.

       

      Við höfum tekið saman helstu kosti við notkun á GreenSenze lausninni

      kostir GreenSenze

      Ferlið

      Með GreenSenze getur þú fylgst með þróun mála með tilliti til markmiða fyrirtækisins og brugðist hratt við. Lausnin er fullkomlega sjálfvirk og tryggir reglufylgni og einföldun losunarbókhalds, sem eykur bæði gagnsæi og samkeppnishæfni.


      Hafðu samband

      Dr. Hafþór Ægir Sigurjónsson

      Partner | Sjálfbærniteymi KPMG

      KPMG á Íslandi