KPMG hefur á undanförnum árum tekist á við fjölmörg flókin álitamál tengd verðmati við kaup og sölu fyrirtækja og eigna. Við höfum jafnframt stutt fyrirtæki með ráðgjöf vegna verðmats í tengslum við reikningsskil og innleiðingu reikningsskilastaðla, þar á meðal IFRS og IS GAAP.
Verðmatsteymi KPMG samanstendur af sérfræðingum með fjölbreyttan menntunar og reynslubakgrunn úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Teymið nýtur einnig stuðnings alþjóðlegs nets verðmatssérfræðinga KPMG með djúpa þekkingu á atvinnugreinum og sérhæfingu í flóknum matsverkefnum. Með þessum grunni veitum við traust innsæi og faglega ráðgjöf sem styður upplýstar ákvarðanir.
Verðmatssérfræðingar KPMG hafa fengið vottun hjá KPMG International.