Frá greiningu til aðgerða
Skýr greining, markvisst mat og hæfni til að bregðast hratt við eru lykilatriði í árangursríkri áhættustjórnun
Umhverfi fyrirtækja breytist sífellt hraðar og felur í sér aukna rekstraráhættu. Því skipta sterk áhættumenning og góð áhættuvitund stjórnenda meira máli en nokkru sinni; þannig geta þeir brugðist bæði tímanlega og rétt við breytingum. Vel skipulögð áhættustýring getur jafnframt verið lykillinn að því að hámarka arðsemi og ná fram betri rekstrarárangri.
Við aðstoðum fjármálafyrirtæki, tryggingafélög, lífeyrissjóði og önnur fyrirtæki við að setja upp heildstæða áhættustýringu, meta og flokka áhættu, skrá og greina áhættuþætti og móta skilvirkar leiðir til að takast á við áhættu á einfaldan og gagnsæjan hátt.
Við styðjum einnig við félög við að uppfylla kröfur um stjórnhætti og regluvörslu (compliance).
Þjónustan okkar
Verklag áhættustjórnunar
Mótun áhættustefnu
Vel skilgreind og hnitmiðuð áhættustefna skapar sameiginlega sýn á áhættustýringu og styður markmið félagsins. Hún felur í sér lýsingu á ferlum, hlutverkum og áhættuvilja og er sett af stjórn. Við aðstoðum við yfirferð, mótun og innleiðingu áhættustefnu eftir þörfum.
Skipulag áhættustjórnunar
Við vinnum eftir alþjóðlega prófuðu skipulagi sem sérfræðingar okkar hafa innleitt bæði hérlendis og erlendis. Við leiðbeinum við mótun skýrra ferla og hlutverkaskiptingar sem treysta grunninn að skilvirkri áhættustýringu.
Áhættugreining og skýrslugjöf
Við setjum upp skýra og skipulagða ferla fyrir mat, greiningu og upplýsingagjöf þannig að stjórnendur hafi áreiðanlega yfirsýn yfir helstu áhættur. Þekking okkar á lykilatvinnugreinum ásamt greiningum KPMG Global gerir okkur kleift að ná utan um mikilvægustu áhættuþætti og sértækar þarfir.
Mælaborð og framsetning
Við nýtum sjálfvirk og sjónræn mælaborð byggð á áhættuskrá og greiningum til að veita stjórnendum reglubundna og skýra mynd af stöðu áhættustýringar, hvort sem það er í Excel eða BI‑lausnum.
Þjónusta vegna fjárhagslegrar áhættu
Fjárhagslegir áhættuþættir á borð við gjaldeyris-, verðbólgu-, útlána-, lausafjár- og mótaðilaáhættu geta haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu félaga. Við aðstoðum m.a. við:
- Mat á líkum á vanefndum mótaðila (probability of default) vegna fjárhagslegra skuldbindinga.
- Verðmat útlánasafna út frá líkum á vanefndum og tapi við vanefnd (loss given default).
- Mælingar á markaðsáhættu byggð á fjárhæð í húfi (Value at Risk) og fleiri mælikvarða.
- Verðmat á valréttum og öðrum afleiðum.
- Samræmt mat á fjárhagslegum áhættuþáttum í heildstæðu áhættumati.
- Álagspróf áhættuþátta og áætlana byggt á næmigreiningum, sviðsmyndum og könnun á viðnámsþrótti ( reverse stress testing).
- Aðstoð við innleiðingu og þróun áhættuvarnareikningsskila ( hedge accounting).
Þjónusta við eftirlitsskylda aðila
Eftirlitsaðilar í Evrópu krefjast nú reglubundinnar skýrslugjafar á XBRL formi. KPMG er leiðandi í þjónustu á sviði XBRL skýrsluskila á Íslandi og í Evrópu. KPMG hefur þróað og leigir hugbúnaðinn K-Helix, sem villuprófar og færir skýrslur XBRL form í samræmi við kröfur EBA og EIOPA með einföldum og öruggum hætti.
- Leiðbeinandi tilmæli FME nr. 2/2015 krefja fjármálafyrirtæki um framkvæmd álagsprófa byggt á næmigreiningum, sviðsmyndum og könnun á viðnámsþrótti (e. reverse stress testing). Við höfum þróað og innleitt álagspróf fyrir á fjárhagsáætlanir lánastofnana sem framkvæmdar eru með sjálfvirkum hætti.
- Túlkun og ráðgjöf vegna Evrópuregluverks, svo sem CRD IV, CRR og ICAAP.
- Uppsetningu skilvirks skipulags áhættustýringar og undirbúningi vegna starfsleyfisumsókna.
- Aðstoð við innleiðingu nýrra reglna, m.a. peningaþvættisvarnir og kröfur til rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Verklag áhættustjórnunar
Við vinnum eftir alþjóðlegu skipulagi áhættustýringar í samræmi við kröfur ISO 31000 og COSO
Mótun áhættustefnu
Vel skilgreind og hnitmiðuð áhættustefna skapar sameiginlega sýn á áhættustýringu og styður markmið félagsins. Hún felur í sér lýsingu á ferlum, hlutverkum og áhættuvilja og er sett af stjórn. Við aðstoðum við yfirferð, mótun og innleiðingu áhættustefnu eftir þörfum.
Skipulag áhættustjórnunar
Við vinnum eftir alþjóðlega prófuðu skipulagi sem sérfræðingar okkar hafa innleitt bæði hérlendis og erlendis. Við leiðbeinum við mótun skýrra ferla og hlutverkaskiptingar sem treysta grunninn að skilvirkri áhættustýringu.
Áhættugreining og skýrslugjöf
Við setjum upp skýra og skipulagða ferla fyrir mat, greiningu og upplýsingagjöf þannig að stjórnendur hafi áreiðanlega yfirsýn yfir helstu áhættur. Þekking okkar á lykilatvinnugreinum ásamt greiningum KPMG Global gerir okkur kleift að ná utan um mikilvægustu áhættuþætti og sértækar þarfir.
Mælaborð og framsetning
Við nýtum sjálfvirk og sjónræn mælaborð byggð á áhættuskrá og greiningum til að veita stjórnendum reglubundna og skýra mynd af stöðu áhættustýringar, hvort sem það er í Excel eða BI‑lausnum.
Þjónusta vegna fjárhagslegrar áhættu
Við aðstoðum við mælingar og framsetningu áhættuþáttaFjárhagslegir áhættuþættir á borð við gjaldeyris-, verðbólgu-, útlána-, lausafjár- og mótaðilaáhættu geta haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu félaga. Við aðstoðum m.a. við:
- Mat á líkum á vanefndum mótaðila (probability of default) vegna fjárhagslegra skuldbindinga.
- Verðmat útlánasafna út frá líkum á vanefndum og tapi við vanefnd (loss given default).
- Mælingar á markaðsáhættu byggð á fjárhæð í húfi (Value at Risk) og fleiri mælikvarða.
- Verðmat á valréttum og öðrum afleiðum.
- Samræmt mat á fjárhagslegum áhættuþáttum í heildstæðu áhættumati.
- Álagspróf áhættuþátta og áætlana byggt á næmigreiningum, sviðsmyndum og könnun á viðnámsþrótti ( reverse stress testing).
- Aðstoð við innleiðingu og þróun áhættuvarnareikningsskila ( hedge accounting).
Þjónusta við eftirlitsskylda aðila
KPMG er leiðandi í XBRL skýrsluskilumEftirlitsaðilar í Evrópu krefjast nú reglubundinnar skýrslugjafar á XBRL formi. KPMG er leiðandi í þjónustu á sviði XBRL skýrsluskila á Íslandi og í Evrópu. KPMG hefur þróað og leigir hugbúnaðinn K-Helix, sem villuprófar og færir skýrslur XBRL form í samræmi við kröfur EBA og EIOPA með einföldum og öruggum hætti.