KPMG kynnti niðurstöðu samantektar um þau efnahagslegu áhrif sem samfélagið á Vestfjörðum hefur á tekjur ríkissjóðs á fundi Innviðafélags Vestfjarða á Patreksfirði þann 26. nóvember undir yfirskriftinni „Vestfirska efnahagsævintýrið“ eða það sem hefur verið kallað Samfélagsspor. Niðurstöður KPMG benda til þess að framlag Vestfjarða til íslensks samfélags og opinberrar samneyslu er töluvert og vel umfram það sem landsvæðið þiggur frá hinu opinbera.
Á fundinum kom fram að samfélagsspor Vestfjarða undanfarin ár nemi um 25,5 milljarða króna og fyrirsjáanlegt að það muni aukast á næstu árum. Efnahagsumsvif fjórðungsins hafa verið að aukast töluvert og þau verðmæti sem eru að skapast á hvern íbúa að sama skapi. Miðað við höfðatölu eru Vestfirðingar sífellt að skapa meiri verðmæti á sama tíma og framlag hins opinbera, m.a. til innviðauppbyggingar, virðist ekki vaxa að sama skapi.
Saga Vestfjarða er sögð hér með aðeins öðrum hætti en stundum vill verða þegar rætt er um þetta landsvæði út frá fjárhagslegum sjónarmiðum. Samantekt KPMG sýnir verðmætasköpun og jákvæð áhrif á ríkisreikninginn.