Hagaðilar og eftirlitsaðilar leggja stöðugt meiri áherslu á sjálfbærniupplýsingar og mikilvægt er að öll fyrirtæki undirbúi sig fyrir auknar kröfur. Þróunin er í þá átt að gerðar verða sömu kröfur til gerð sjálfbærniskýrslna og til ársreikninga hvað varðar vandaða, ítarlega og áreiðanlega upplýsingagjöf.
Fyrir liggur að tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja mun verða innleidd í Íslensk lög, tímasetning liggur ekki fyrir en í EU löndunum er miðað við ársbyrjun 2024.