Óhætt er að segja að spjallmenni líkt og ChatGPT og Microsoft 365 Copilot hafi komið inn af miklum krafti. Flestir á vinnumarkaði hafa tekið þátt í einhverjum umræðum um hvernig spjallmenni komi til með að móta starf þeirra, prófað sig áfram með eða hlustað á aðra ræða notkun á þeim.
Gervigreindina má nýta til að aðstoða sig í daglegum störfum, en til þess að fá sem mest út úr notkuninni eru ýmis atriði sem fólk ætti að hafa í huga. Neðangreind umfjöllun er ætluð til þess að varpa ljósi á nokkur þeirra atriða með það að markmiði að gera notkun á gervigreind og spjallmennum skilvirkari.