Skilvirk áhættustjórnun verður sífellt mikilvægari í rekstri fyrirtækja. Kröfur til fyrirtækja og stofnana hafa aukist mikið síðustu ár, meðal annars í tengslum við auknar áherslur í sjálfbærni. 

KPMG og Stjórnvísi buðu til þessa fundar þar sem fjallað var um áhættustjórnun út frá ýmsum sjónarhornum og leiðir til að greina áhættu í rekstri og ná yfirsýn yfir þá áhættu sem skiptir mestu máli kynntar. Með skilvirkri áhættustjórnun geta fyrirtæki og stofnanir lækkað kostnað og náð betri árangri í rekstri.

Dagskrá:

Mikilvægi áhættustjórnunar - hvernig getur tæknin hjálpað okkur?
  • Sigurjón Birgir Hákonarson, stafrænar lausnir KPMG

Innleiðing á sjálfbærni í áhættustýringu

  • Hafþór Ægir Sigurjónsson, forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG

Reynsla ÁTVR af áhættustjórnun

  • Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR

 

Fundarstjóri er Helena W. Óladóttir frá sjálfbærniteymi KPMG

Nánari upplýsingar veita:

Hafþór Ægir Sigurjónsson

hsigurjonsson@kpmg.is

Sigurjón Birkir Hákonarson

shakonarson@kpmg.is

informative image