Gunnar Ragnarsson

Senior Manager

KPMG á Íslandi

Gunnar hóf störf hjá KPMG árið 1996, fyrst á endurskoðunarsviði og frá 2012 á ráðgjafarsviði.

Gunnar hefur með starfi sínu á ráðgjafarsviði KPMG lagt sérstaka áherslu á innri endurskoðun og sérstakar skoðanir hjá margvíslegum félögum á sviði fjármála, lífeyrisréttinda, flutninga og framleiðslu. Á endurskoðunarsviði KPMG hefur Gunnar víðtæka reynslu af endurskoðun félaga af ýmsum toga. Hann hefur m.a. unnið við endurskoðun hjá fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum, fasteignafélögum, eignarhaldsfélögum, framleiðslufyrirtækjum í matvælaiðnaði og sjávarútvegi, verslunum og fjölda annarra fyrirtækja og stofnana. Hann hefur komið að endurskoðun félaga sem gera reikningsskil sín samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum

 

Hjá KPMG verkstýrir Gunnar og vinnur við innri endurskoðun hjá fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum auk þess að verkstýra og vinna við ytri endurskoðun félaga í matvælaiðnaði.

Gunnar hefur verkstýrt og unnið við skoðanir sjálfstæðs skoðunarmanns sértryggðra skuldabréfa bankanna frá árinu 2016 í samræmi við lög nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf og reglugerð 190/2023 um sértryggð skuldabréf, áður reglugerð nr. 528/2008.  Í því felst að framkvæma greiningaraðgerðir og úrtaksskoðanir á tryggingasafni sértryggðra skuldabréfa, samskipti við starfsmenn bankans, gerð skýrslna o.fl. Frá janúar 2024 hefur Gunnar verið sjálfstæður skoðunarmaður sértryggða skuldabréfa bankanna.

Auk þess hefur hann verkstýrt og unnið við sérstakar staðfestingar fjárhagslegum skilyrðum skuldabréfaútgáfa skráðra félaga og á eignasöfnun í eignastýringu fjármálafyrirtækja. Jafnframt þess sem hann hefur verkstýrt og unnið við sérstakar úttektir og skoðanir hjá stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum, m.a. staðfestingar vegna styrkja frá innlendum og erlendum aðilum og talningar atkvæða.

  • Viðskiptafræðingur (cand.oecon) frá Háskóla Íslands, 1995

  • Meðlimur í Félagi um innri endurskoðun síðan 2012

  • Í stjórn Félags um innri endurskoðun frá 2024

  • ISAE 3000 Staðall um staðfestingar (e. Assurance ISAE 3000 Intermediate)