Hrafnhildur Helgadóttir

Partner

KPMG á Íslandi

Hrafnhildur hefur verið hluthafi frá árinu 2010. Hún er fagstjóri endurskoðunarsviðs hjá KPMG, áður var hún yfirmaður gæðamála hjá félaginu.

Hrafnhildur hóf störf hjá KPMG árið 1996. Hún er virk í störfum Félags löggiltra endurskoðenda, er í endurskoðunarnefnd félagsins og hefur komið að gæðamálum og gæðaeftirliti félagsins. 

Hagnýt reynsla 

Hrafnhildur hefur víðtæka reynslu og þekkingu í endurskoðun og reikningsskilum.  Hún hefur sérhæft sig í endurskoðun á fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum, bæði ytri og innri endurskoðun, en jafnframt í endurskoðun stærri fyrirtækja og samstæða sem gera upp  samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.