Sesselja starfar við áhættustýringu KPMG.
Sesselja hóf störf hjá KPMG 1. febrúar 2008 og starfar í áhættustýringu, en kemur jafnframt að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum.
Frá júní 2002 til janúar 2008 starfaði Sesselja sem skrifstofustjóri á almennri skrifstofu félagsmálaráðuneytisins og staðgengill ráðuneytisstjóra. Jafnframt var hún sett skrifstofustjóri sveitarstjórnarskrifstofu ráðuneytisins frá 1. maí - 31. desember 2008.
Á árunum 1993 til 2000 var hún lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, einkum í sveitarstjórnarmálum.
Sesselja er höfundur bókarinnar Sveitarstjórnarlögin sem gefin var út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga árið 2007.
Sesselja hefur kennt sveitarstjórnarrétt við Háskólann í Reykjavík og verið prófdómari í Háskóla Íslands.