Skip to main content

      Við leitum ávallt að góðu fólki til að bætast við teymið okkar

      Bakgrunnur í viðskiptafræði, hagfræði, eða verkfræði hentar vel til slíkra starfa. Ekki skemmir fyrir að vera talnaséní sem vinnur af áreiðanleika og vill vinna í teymi.

      Ein umfangsmesta þjónusta KPMG er á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Fjöldi starfsfólks félagsins sem sinnir þessari þjónustu er um 100 manns sem er staðsett vítt og breitt um landið. Þrátt fyrir það vinnur hópurinn þétt saman, hvort sem það er hlið við hlið eða á Teams.

      • Teymisvinna
      • Innsýn í rekstur
      • Greining gagna
      • Stafrænar lausnir
      • Staðfesting sjálfbærni upplýsinga
      • Starfsþróun
      • Áreiðanleiki

      Fjölbreytt skrifstofustarf og svo miklu meira en það

      Dagleg störf fela meðal annars í sér ársreikningagerð, reikningsskil, staðfestingar sjálfbærniupplýsinga, greiningu gagna, mikla innsýn í fjölbreyttan rekstur fyrirtækja, nýtingu stafrænna lausna og mörg önnur spennandi verkefni. Hér má heyra starfsfólk endurskoðunarsviðs segja frá sinni upplifun af starfinu.


      Laus störf

      Taktu ferilinn á næsta stig með KPMG þar sem þú færð tækifæri til að vinna með reynslumiklum sérfræðingum í alþjóðlegu og tæknidrifnu fyrirtæki. Við bjóðum upp á spennandi vinnuumhverfi og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.