Skip to main content

      • 12 skrifstofur á Íslandi
      • 41 ár meðalaldur starfsfólks
      • 240 starfsmenn á Íslandi
      • 8,7 ár meðalstarfsaldur
      • 8 mismunandi þjóðerni
      • 89% starfsánægja og helgun


      Framúrskarandi vinnustaður þar sem fólk nýtur sín faglega og félagslega

      fólk í vinnu

      Við vinnum að krefjandi og fjölbreyttum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif fyrir viðskiptavini og samfélagið. 

      Starfsfólk hefur jafnframt tækifæri til að verja einum launuðum degi á ári í sjálfboðaliðastarf.

      Sem þekkingarfyrirtæki leggjum við ríka áherslu á stöðuga þróun starfsfólks. Við bjóðum upp á öfluga nýliðamóttöku, markvisst starfsþróunarferli og fjölbreytta fræðslu með sérstakri áherslu á tæknilega þekkingu og leiðtogahæfni starfsfólks.

      Við leggjum áherslu á jöfn tækifæri, virðingu og vinnuumhverfi þar sem fólk getur verið það sjálft. Öflugt samstarf og traust eru lykillinn að árangri og einkennisorð okkar endurspegla það: Betri saman.

      Þá er virkt félagslíf og starfsmannafélag sem stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum yfir árið.

      Við vitum að þarfir fólks eru mismunandi og bjóðum því upp á sveigjanleika í vinnu. Sérstök áhersla er lögð á stuðning við verðandi og nýbakaða foreldra, meðal annars með fæðingarorlofsstyrk og möguleika á að safna orlofi í fæðingarorlofi.

      Við leggjum áherslu á öruggt starfsumhverfi og styðjum við líkamlega og andlega heilsu starfsfólks með fjölbreyttum úrræðum, svo sem íþróttastyrk, heilsufarsmælingum, KPMG fit tímum tvisvar í viku, ýmsum íþróttahópum og fræðslu.

      Starfsfólki stendur einnig til boða allt að fjórir fríir tímar á ári hjá sálfræðingum eða öðrum heilsutengdum ráðgjöfum í gegnum Kara Connect velferðartorg.


      KPMG

      Gildin okkar

      Hugrekki

      Við hugsum djarft og framkvæmum umbúðalaust.

      Heilindi

      Við veljum réttu leiðina.

      Samheldni

      Við berum virðingu fyrir hvert öðru og eflumst með því að nýta mismunand styrkleika okkar.

      Framúrskarandi árangur

      Við hættum aldrei að læra og gera betur.

      Til hins betra

      Verk okkar skipta máli og við látum gott af okkur leiða.
      Hjá KPMG starfar samheldinn hópur fólks sem nýtur þess að vinna fjölbreytt verkefni sem hafa alvöru áhrif á okkar viðskiptavini og samstarfsfólk. Við leggjum okkur fram við að veita frábæra þjónustu og erum því frammistöðudrifin en það skiptir okkur þó miklu máli að skapa sveigjanlegt, stuðningsríkt og sálfræðilega öruggt umhverfi fyrir okkar starfsfólk svo að allir geti verið besta útgáfan af sjálfum sér. Fyrir fólk sem elskar að læra og vaxa er því alveg ótrúlega gefandi að starfa í svona þekkingarsamfélagi þar sem þú lærir eitthvað nýtt á hverjum degi.

      Erik Christianson Chaillot

      Mannauðsstjóri

      KPMG á Íslandi


      Að vinna við endurskoðun

      Við endurskoðun hjá KPMG færð þú innsýn í fjölbreyttan rekstur fyrirtækja á Íslandi, vinnur þétt með þínu teymi og kemur að mörgum spennandi verkefnum
      Starfsfólk KPMG á Íslandi situr brosandi í sófa að spjalla saman


      Hvað segir fólkið okkar um vinnustaðinn?

      Við spurðum starfsfólk hvað þeim finnst best við að vinna hjá KPMG, hvernig þau myndu lýsa vinnustaðamenningunni og afhverju þau myndu mæla með KPMG sem vinnustað.

      Gísli Baldvinsson

      Endurskoðun

      Ég myndi mæla með KPMG fyrir fólk sem vill læra mikið, þróast í starfi og vinna með öflugu fólki. Hér færðu tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, bera ábyrgð og hafa áhrif. KPMG leggur jafnframt áherslu á starfsþróun, leiðtogafærni og samvinnu.

      Kristín Sif Magnúsdóttir Laxdal

      KPMG Law

      Það sem mér finnst standa upp úr er hvað verkefnin eru fjölbreytt og maður er stöðugt að læra eitthvað nýtt. Samstarfsfólkið skiptir líka gríðarlega miklu máli og það er alltaf hægt að leita ráða. Svo er líka mikill plús hvað það er góður sveigjanleiki í vinnunni.

      Rut Gunnarsdóttir

      Ráðgjöf

      Vinnustaðamenningi er opin, jákvæð og afslöppuð en á sama tíma fagleg. KPMG heldur vel utan um fólkið sitt, veitir tækifæri til að fást við krefjandi og lærdómsrík verkefni, og hristir saman frábæra blöndu af fjölbreyttum sérfræðingum og skemmtilegu fólki. 

      Emil Halldórsson Holm

      Upplýsingatæknideild

      Fjölbreytt og krefjandi vinna, dásamlegt samstarfsfólk og vinnustaður sem sýnir sínum starfsmönnum sveigjanleika, virðingu og umhyggju. Það er umhverfi sem ég vil vera í alla mína starfsævi.

      Kristján Jóhannesson

      Ráðgjöf

      Ég mæli með KPMG vegna þess að hér fær maður bæði faglegar áskoranir og traust. Maður lærir mikið, vinnur með öflugu fólki og finnur að framlagið skiptir raunverulega máli. Það besta við vinnustaðinn er samstarfsfólkið, fjölbreytt og krefjandi verkefni, góður stuðningur og sveigjanleiki í starfi.

      Helga Guðmundsdóttir

      Endurskoðun

      Vinnustaðamenningin einkennist af hraðri starfsþróun, samvinnu og sveigjanleika. Það sem gerir KPMG einstakt er sú mikla sérfræðiþekking sem ríkir innan fyrirtækisins.. Ég myndi klárlega mæla með KPMG því hér fá einstaklingar tækifæri til vaxtar.

      Frábær vinnuaðstaða

      Við erum með skrifstofur víðsvegar um landið og höfum fjárfest í fyrsta flokks vinnuaðstöðu sem starfsfólki líður vel í. Við hönnun á vinnustaðnum höfum við lagt sérstaka áherslu á góð loftgæði, fallega lýsingu, góða hljóðvist og næði.  

      Í höfuðstöðvum okkar störfum við í Svansvottuðu og verkefnamiðuðu vinnurými til að mæta fjölbreyttum þörfum starfsfólks og erum með frábært mötuneyti í efsta gæðaflokki, búningsklefa, hjólaaðstöðu og falleg kaffitorg á hverri hæð.


      Íþróttir og félagslíf

      Það verður að vera gaman! Við vitum að það skiptir miklu máli fyrir vinnustaðinn að fá starfsfólk reglulega saman í félagslegum aðstæðum til að kynnast samstarfsfólkinu betur og styrkja liðsheildina. Bæði stendur félagið sjálft reglulega fyrir félagslegum og íþróttatengdum viðburðum og svo skipuleggur öflugt starfsmannafélag KPMG fjölbreytta viðburði í gegnum árið.

      Þú getur kíkt á @kpmgiceland á Instagram og fylgst með félagslífinu.


      Laus störf

      Taktu ferilinn á næsta stig með KPMG þar sem þú færð tækifæri til að vinna með reynslumiklum sérfræðingum í alþjóðlegu og tæknidrifnu fyrirtæki. Við bjóðum upp á spennandi vinnuumhverfi og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.