Helstu niðurstöður skýrslunnar sýna að þróun ferðaþjónustunnar ræðst af samspili tveggja meginþátta sem skapa bæði tækifæri og óvissu:
Samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar
Þ.e. hversu eftirsóknarvert Ísland er sem áfangastaður ferðamanna, meðal annars með tilliti til upplifunar, aðgengis, ímyndar og verðsamkeppnishæfni.
Þolmörk lands og samfélags
Þolmörk endurspegla hversu vel náttúra, innviðir og samfélag eru í stakk búin til að taka á móti ferðamönnum. Þessum óvissuþætti má þannig á vissan hátt líkja við afkastagetu Íslands sem ferðamannastaðar til lengri tíma.