Magnús hóf störf hjá ráðgjafarsviði KPMG árið 2005 og varð hluthafi árið 2014. Hann hefur verið stjórnarformaður félagsins síðastliðin tvö ár og leitt fyrirtækjaráðgjöf KPMG. Hann hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf til fyrirtækja, fjármálafyrirtækja og opinberra aðila, meðal annars á sviði fjármála, fyrirtækjaviðskipta, endurskipulagningar og rekstrarumbóta.
Magnús G. Erlendsson er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG
Magnús tekur við af Svanbirni Thoroddsen sem lætur af störfum hjá KPMG eftir 17 ára feril hjá félaginu. Svanbjörn hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslenskri Fjárfestingu ehf. og hverfur því til nýrra verkefna.