Skip to main content

      KPMG og Advise hafa skrifað undir samstarfssamning sem gerir KPMG kleift að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu með Advise Business Monitor hugbúnaðarlausninni. 

      Advise, sem er íslensk hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar, veitir litlum og meðalstórum fyrirtækjum rauntímaupplýsingar um rekstur sinn, auðveldar samskipti hagsmunaaðila og stuðlar að gagnadrifnum  ákvörðunum. Lausnin innifelur m.a. lifandi rekstrargreiningar og mælaborð auk öflugrar aðgangsstýringar. 

      Í Advise eru  forsniðnar tengingar við öll helstu bókhaldskerfi sem eru í notkun á Íslandi, svosem DK, Microsoft Business Central, Navision, Reglu, Uniconta og Payday. Flest fyrirtæki á Íslandi geta því með auðveldum hætti tengt fjárhagsbókhald sitt við Advise og stillt upp rekstrargreiningum og mælaborðum út frá sínum þörfum.  KPMG sinnir margvíslegri þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og því er Advise lausnin mikilvæg viðbót í þjónustuframboð félagsins. Stefnt er að því að fleiri bókhaldskerfi geti tengst lausninni þegar fram í sækir. Nánar um Advise.

      Öflugt nútíma mælaborð

       

      Mælaborðið gefur stjórnendum myndræna yfirsýn yfir lykiltölur rekstrar í rauntíma og býður upp á fjölbreytta möguleika í uppsetningu sem auðvelt er að aðlaga að hverjum og einum.

      PDF skýrsla með einum smelli sem hægt er að nýta til að senda rekstrarupplýsingar á stjórnir fyrirtækja eða aðra hagsmunaaðila. Skýrslan tekur saman rekstraryfirlit, áætlun, frávikagreiningu og mælaborð.

      Skjáskot frá Advise

      Staðlaðar tengingar

       

      Advise er með forsniðnar tengingar við helstu bókhaldskerfi. Einfalt er að stilla upp yfirliti yfir rekstur, efnahag og sölu. Bókhaldslyklar, vörur og viðskiptamenn eru flokkaðir með einfaldri "drag & drop" virkni. Sjálfvirk uppfærsla tryggir að notendur eru alltaf með rauntímagögn.

      Rekstraryfirlit

       

      Í rekstraryfirlitinu er hægt að sundurliða og greina upplýsingar. Kerfið birtir hreyfingalista og nánari upplýsingar með hverri færslu.

      Hægt er að bæta við innsláttar- og reiknilínum til að stilla upp viðeigandi rekstrarhlutföllum og öðrum lykil mælikvörðum rekstrar.

      Advise innifelur áætlanagerð og frávikagreiningu þar sem hægt er að bera saman rauntölur við fyrri ár og áætlun.

      Nánari upplýsingar veitir

      Gréta Björg Blængsdóttir

      Viðskiptastjóri Veltu

      KPMG á Íslandi